Efast um að Pochettino geri betur en Carrick

Hörður Snævar Jónsson

Fimmtudaginn 12. nóvember 2026 22:00

Mauricio Pochettino Getty Images

Kaveh Solhekol, fréttamaður Sky Sports, hefur lýst yfir efasemdum um að Mauricio Pochettino sé rétti maðurinn til að taka við Manchester United.

Argentínumaðurinn er talinn líklegur til að taka við af Michael Carrick, sem hefur verið undir mikilli pressu vegna slaks gengis liðsins.

Solhekol segir Pochettino hafa verið draumakost fyrir United fyrir áratug en er ekki sannfærður um að svo sé enn.

„Fyrir tíu árum hefði Pochettino verið fullkominn knattspyrnustjóri fyrir Manchester United. Ég er ekki jafn viss núna,“ sagði Solhekol.

Hann telur þó að Pochettino muni hafa jákvæð áhrif á andrúmsloftið hjá félaginu.

„Leikmenn elska hann og fjölmiðlarnir líka. Hann hefur smitandi persónuleika og mun örugglega lyfta stemningunni í búningsklefanum.“

Solhekol hefur hins vegar efasemdir um getu Argentínumannsins til að snúa genginu við.

„Ég veit ekki hvort hann geti náð meira út úr þessum leikmönnum en Michael Carrick gerði.“

Fréttamaðurinn bendir einnig á að Pochettino hafi aðeins unnið titla sem þjálfari Paris Saint-Germain.

„Það eru mínar helstu áhyggjur. Hann vann ekki frönsku deildina á sínu fyrsta tímabili og var síðan látinn fara eftir vonbrigði í Meistaradeildinni.“

Solhekol minnir jafnframt á stutta dvöl Pochettino hjá Chelsea, þar sem hann stýrði liðinu aðeins eitt tímabil.

Hann segir því enn óljóst hvort Pochettino geti tekist á við pressuna á Old Trafford.

Fleiri fréttir

内容来自 DV.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅