Ótrúleg hrakfallasaga útlendings á íslenskum vinnumarkaði - Missti heilsuna en fær ekki krónu til viðbótar
Ritstjórn DV
Fimmtudaginn 12. nóvember 2026 22:00
Kærunefnd jafnréttismála hefur komist að þeirri niðurstöðu að ónefnt stéttarfélag hafi ekki mismunað erlendum manni, sem starfaði í nokkurn tíma á íslenskum vinnumarkaði, með beinum hætti með því að neita að taka við erlendu læknisvottorði þegar maðurinn sótti um greiðslur úr sjúkrasjóði félagsins. Félagið mismunaði manninum hins vegar með óbeinum hætti en nefndin segir það hafa verið réttlætanlegt. Miðað við lýsingar mannsins er líkami hans illa farinn eftir vinnu hans á Íslandi en svo virðist sem að hann muni ekki fá frekari greiðslur en manninum var sagt upp störfum eftir að hann var búinn að vera í veikindaleyfi í nokkurn tíma.
Stéttarfélagið hafnaði umsókn mannsins um sjúkradagpeninga á þeim forsendum að hann hefði hvorki framvísað læknisvottorði sem væri íslenskt eða á íslensku.
Sótti maðurinn um dagpeningana eftir að hafa fullnýtt veikindarétt sinn hjá vinnuveitanda. Sagðist hann vegna aðstæðna sinna ekki geta komið til Íslands en með umsókninni fylgdi læknisvottorð frá heimalandi hans ásamt enskri og íslenskri þýðingu.
Greiðslu sjúkradagpeninga var hafnað á þeim grundvelli að læknisvottorðið sem fylgdi umsókninni væri ekki upprunnið úr íslensku sjúkraskrárkerfi, og á íslensku, en það leiddi til þess að starfsfólk félagsins gæti ekki sannreynt uppruna þess með óyggjandi hætti. Vísaði stéttarfélagið m.a. til framkvæmdar hjá öðrum sjúkrasjóðum hér á landi, en reynslan hefði sýnt að í allnokkrum tilvikum hefðu erlend vottorð reynst tilbúin eða ekki stafað frá aðilum sem bærir væru til að gefa út slík vottorð, samkvæmt starfsreglum sjóðsins.
Þjóðerni
Vildi maðurinn hins vegar meina að kröfur um íslenskt vottorð á íslensku fælu í sér mismunun gagnvart honum á grundvelli þjóðernisuppruna þar sem aðilar af erlendu þjóðerni færu í fleiri tilvikum til síns heima og ættu því óhægara um vik að afla læknisvottorða hér á landi til sönnunar veikindum sínum.
Kom fram í kæru mannsins að starf hans hér á landi hafi verið líkamlega erfitt sem leitt hafi til slæms líkamlegs ástands og hafi orðið til þess að hann hafi þurft að fara erlendis vegna óvinnufærni sinnar. Hann hafi farið í sumarleyfi til heimalands síns en þar hafi hann hlotið alvarleg bakmeiðsl við einfaldar heimilisathafnir. Hafi hann leitað til læknis daginn eftir og hafi læknirinn gefið út veikindavottorð, sem sent hafi verið til vinnuveitanda. Hafi veikindavottorðið ásamt enskri þýðingu verið viðurkennt af vinnuveitandanum sem greitt hafi áunna sex veikindadaga.
Maðurinn sagði að þegar áunnir veikindadagar hafi verið greiddir hafi hann sótt um sjúkradagpeninga hjá stéttarfélaginu en verið hafnað, af áðurnefndum ástæðum. Hann hafi hins vegar vegna veikinda sinna ekki getað ferðast til Íslands til að hitta lækni, auk þess sem hann hafi verið orðinn fjárvana vegna lækniskostnaðar og framfærslu í heimalandi sínu. Hann hafi heldur ekki haft tryggingar í heimalandi sínu þar sem hann hafi enn verið starfandi hjá fyrirtækinu á Íslandi.
Sagðist maðurinn hafa reynt að útskýra aðstæður sínar fyrir stéttarfélaginu og sent ný vottorð, með bæði íslenskum og enskum þýðingum en ekki haft erindi sem erfiði. Vildi maðurinn meina að sér hefði verið mismunað á grundvelli þjóðernisuppruna. Vildi hann sömuleiðis meina að afgreiðsla stéttarfélagsins á umsókn hans hafi ekki verið í samræmi við EES-samninginn. Fólk með annan þjóðernisuppruna en íslenskan væri útsettara fyrir mismunun enda sá hópur sem dveldi og færi oftar á annan dvalarstað vegna fjölskyldutengsla og uppruna. Væri þannig um að ræða beina mismunun en yrði ekki fallist á það, væri um að ræða óbeina mismunun með því að setja reglur sem kæmu verr niður á ákveðnum hópum vegna þjóðernisuppruna.
Svik
Stéttarfélagið fór í andsvörum all ítarlega yfir forsendur þess að það neitaði að samþykkja hin erlendu vottorð. Meðal annars var vísað til þess að sjúkrasjóði félagsins bærist á hverju ári fjöldi læknisvottorða, sem flest kæmu úr íslenskum sjúkrakerfum og hægt væri að staðfesta uppruna þeirra léki vafi á réttmæti greiðslna úr sjóðnum. Fram til ársins 2024 hafi sjóðurinn tekið við vottorðum erlendis frá sem fullnægjandi sönnun á veikindum samkvæmt reglum félagsins. Hafi slík vottorð verið tekin gild í góðri trú um uppruna þeirra og vottun veikinda.
Hins vegar hafi reynsla félagsins og annarra stéttarfélaga sýnt að ítrekað bærust vottorð sem grunur léki á að væru ekki gefin út af þar til bærum heilbrigðisstarfsmönnum og að í of mörgum tilvikum hafi sá grunur fengist staðfestur. Hafi félagið lagt í mikla vinnu og kostnað við að ganga úr skugga um lögmæti vottorða. Framkvæmdin hafi leitt í ljós ómöguleika á að staðfesta uppruna erlendra vottorða með fullnægjandi hætti. Í mörgum tilvikum hafi vottorð reynst tilbúningur og um hafi verið að ræða vandaðar falsanir, enda auðvelt að útbúa slík gögn.
Í samræmi við fordæmi frá öðrum sjóðum krefjist félgið þess að læknisvottorð sé úr íslensku sjúkraskrárkerfi og á íslensku, svo starfsfólk sjóðsins geti sannreynt uppruna þess með óyggjandi hætti. Reglan beinist þannig ekki að fólki af ákveðnu þjóðerni eða þjóðernisuppruna, heldur eigi jafnt við um alla, einnig íslenska félagsmenn sem leggi fram erlend vottorð.
Vildi félagið meina að kröfur þess um uppruna vottorða fælu ekki í sér mismunun á vinnumarkaði heldur væri um að ræða formkröfur sem tryggja ættu jafnræði meðal félagsfólks og koma í veg fyrir greiðslur sem ekki ættu rétt á sér. Afstaðan byggði á reynslu félagsins og annarra stéttarfélaga í sömu stöðu. Reglan gilti jafnt um alla félagsmenn óháð þjóðerni og miðaði við að vernda lögmæta hagsmuni á hlutlausan hátt.
Ekki bein mismun en óbein
Í niðurstöðu kærunefndar jafnréttismála segir að það feli ekki í sér beina mismunun á grundvelli þjóðernisuppruna að stéttarfélagið taki ekki við læknisvottorðum, nema þau séu íslensk og á íslensku þar sem sú regla gildi fyrir alla félagsmenn óháð þjóðernisuppruna og beinist þannig ekki að fólki af ákveðnu þjóðerni.
Þegar kemur að því hvort þetta feli í sér óbeina mismunun, í skilningi laga um jafna meðferð á vinnumarkaði, segir nefndin að líta verði til þess að almennt megi telja það torsóttara fyrir aðila af erlendum þjóðernisuppruna, sem veikist erlendis, að afla íslensks læknisvottorðs, en íslenskan aðila. Verði ekki fram hjá því litið að íslenskukunnátta, fjölskyldutengsl og/eða félagsnet, sem almennt megi ætla að aðilar af íslenskum þjóðernisuppruna búi yfir, geri þeim hægara um vik að afla íslensks læknisvottorðs, veikist þeir erlendis, heldur en þegar aðili af erlendum þjóðernisuppruna sé í sömu stöðu.
Nefndin fellst á það að að umrætt skilyrði stéttarfélagsins komi að jafnaði verr við einstaklinga af erlendum þjóðernisuppruna samanborið við einstaklinga af íslenskum þjóðernisuppruna sem geti talist óbein mismunun.
Nefndin fer einnig ítarlega yfir lagalegan grundvöll fullyrðinga í kæru mannsins um að samkvæmt EES-samningnum hafi stéttarfélaginu verið skylt að samþykkja erlenda vottorðið. Nefndin tekur hins hins vegar ekki undir það.
Kærunefnd jafnréttismála bendir á að óbein mismunun teljist ekki fela í sér brot á lögum um jafna meðferð á vinnumarkaði ef unnt sé að réttlæta hana á málefnalegan hátt með lögmætu markmiði og að aðferðirnar til að ná markmiðinu séu viðeigandi og nauðsynlegar. Sú ákvörðun félagsins að gera kröfu um að læknisvottorð séu upprunnin frá Íslandi en ekki erlendis frá hafi það markmið að vernda fjármuni sjóðsins og tryggja að sjóðfélagar fái réttmætar greiðslur úr honum. Slíkt markmið verði að teljast lögmætt og málefnalegt. Stéttarfélagið hafi einnig litla möguleika á að rekja uppruna erlendra vottorða.
Niðurstaðan er því sú að hin óbeina mismun sem maðurinn varð fyrir hafi verið réttlætanleg og teljist því ekki vera brot á lögum um jafnan rétt á vinnumarkaði.
内容来自 DV.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗