Todmobile er nú með nýjum tón
Todmobile í mikilli sveiflu þegar sveitin fékk eftirsótt heiðursverðlaun. Áhrifin á íslenskt menningarlíf um langan tíma eru mikil. mbl.is/Karítas
„Við munum tjalda ýmsu til og til liðs við okkur fáum við hæfileikafólk,“ segir Eyþór Arnalds tónlistarmaður í samtali við Morgunblaðið. Hann er einn liðsmanna Todmobile, þeirrar mögnuðu hljómsveitar, sem heldur tónleika í Hörpu á morgun, föstudagskvöldið 13. nóvember. Á árunum um og eftir 1990 var Todmobile ein af vinsælustu sveitum landsins sem hélt fjölsótta dansleiki og tónleika víða um land.
Náði fljótt miklu flugi
Allt sem sveitin gerði náði miklu flugi; þétt spilamennskan, öflugur takturinn og kraftmikill söngur Andreu Gylfadóttur. Svo fór að sveitin dró sig í hlé og annað tók við hjá liðsmönnum hennar, rétt eins og gengur. En lögin lifa og Todmobile hefur á síðustu árum komið fram mjög reglulega og við valin tilefni. Landinn kann lögin, getur raulað með og á ferðinni í bílnum slegið puttunum á stýrið í fylgni við hrynjandi laganna.
Fáðu aðgang að þessari grein
Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er.
Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli.
Tryggðu þér aðgang núna.
内容来自 Mbl.is - Innlendar fréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗