Fara frá Pútín til Selenskís

Erindrekar Bandaríkjanna eru sagðir á leið til Dyflinnar frá Moskvu.

Erindrekar Bandaríkjanna eru sagðir á leið til Dyflinnar frá Moskvu. AFP

Bandarísku erindrekarnir Jared Kushner og Steve Witkoff áttu í viðræðum við Vladimir Pútín Rússlandsforseta í Moskvu í dag.

Fundurinn er liður í þéttri dagskrá þeirra en í gær lauk viðræðum í Abú Dabí sem miðuðu að því að binda enda á stríðið í Úkraínu

Eru þeir sagðir á leið til Dyflinnar á Írlandi til fundar við Volodímír Selenskí Úkraínuforseta.

Aðeins ein markalína: lína landamæranna

Viðræðurnar í Abú Dabí snerust meðal annars um framtíðarskipan öryggismála í Evrópu eftir stríðið. Enn virðist þó langt í land með að samkomulag náist um frið.

Ummæli bæði Pútíns og annarra rússneskra embættismanna benda til þess að afstaða þeirra til stríðsins hafi ekki breyst og að kröfur þeirra um landsvæði og hlutleysi séu enn langt umfram það sem úkraínsk stjórnvöld hafa sagst vera reiðubúin að samþykkja.

„Fyrir okkur er aðeins ein markalína: lína landamæranna. Því þá verður ljóst að við erum hérna og þið eruð þarna. Um leið og við förum að ræða „grá svæði“ hefjast deilur strax,“ er í frétt BBC haft eftir Pútín.

内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅