Barnabarnabarn Agöthu Christie ræddi við Ragnar

Ragnar Jónasson rithöfundur hefur þýtt bækur eftir Agöthu Christie en bæði eru þekki fyrir glæpasögur sína. Þarna ræðir hann við James Prichard sem er barnabarnabarn Agöthu Christie. mbl.is/Karítas

Ragnar Jónasson rithöfundur og skipuleggjandi Iceland Noir-bókmenntahátíðarinnar ræddi við heiðursgest hennar, James Prichard, í Fríkirkjunni í dag. 

James er framkvæmdastjóri fjölskyldufyrirtækisins Agatha Christie Limited enda barnabarnabarn glæpasagnadrottingarinnar frá Bretlandi. Faðir James rak áður fyrirtækið sem sér um allt sem tengist útgáfu verka hennar í dag. 

Bækur langömmu James eru löngu orðnar sígildar og eru endurútgefnar um allan heim. Þá hafa einnig verið gefnar út kvikmyndaaðlaganir byggðar á sögum hennar svo eitthvað sé nefnt.

Áhugamenn um glæpasögur komu saman í Fríkirkjunni til að heyra á samtal James við Ragnar sem er mikill aðdáandi Agöthu Christe. 

James ræddi við Morgunblaðið á dögunum. Iceland Noir hófst í gær og stendur lýkur á laugardagskvöldið.

Agatha Christie á sér ófáa aðdáendur.

Agatha Christie á sér ófáa aðdáendur. mbl.is/Karítas

Gestir Iceland Noir fylgdust með viðburðinum í Fríkirkjunni.

Gestir Iceland Noir fylgdust með viðburðinum í Fríkirkjunni. mbl.is/Karítas

James Prichard, heiðursgestur Iceland Noir, er framkvæmdastjóri Agatha Christe Ltd.

James Prichard, heiðursgestur Iceland Noir, er framkvæmdastjóri Agatha Christe Ltd. mbl.is/Karítas

James er höfuð fjölskyldufyrirtækisins sem heldur á höfundarétti verk Agöthu Christe. Faðir hans var áður framkvæmdastjóri þess. mbl.is/Karítas

内容来自 Mbl.is - Innlendar fréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅