KR-ingar enn með fullt hús stiga
KR er enn á toppnum með fullt hús stiga eftir 20 stiga sigur á nýliðum Hattar, 112:92, í úrvalsdeild karla í körfubolta á Meistaravöllum í kvöld.
KR-ingar eru með tólf stig eftir sex umferðir en Höttur er í áttunda sæti með fjögur.
KR var fimm stigum yfir í hálfleik, 50:45, og jók forskot sitt í seinni hálfleik.
Þórir Guðmundur Þorbjarnarson fór fyrir sínum mönnum í KR-liðinu og skoraði 27 stig, tók sex fráköst og gaf níu stoðsendingar.
Hjá Hetti skoraði Adam Eiður Ásgeirsson 19 stig.
KR - Höttur 112:92
Meistaravellir, Bónus deild karla, 12. nóvember 2026.
Gangur leiksins:: 5:3, 7:8, 12:20, 21:23, 30:23, 35:25, 40:33, 50:45, 59:51, 68:61, 77:73, 82:78, 92:83, 98:87, 102:89, 112:92.
KR: Þórir Guðmundur Þorbjarnarson 27/6 fráköst/9 stoðsendingar, Roberts Berzins 23, Rafail Lanaras 20/7 fráköst/5 stoðsendingar, Linards Jaunzems 19/6 fráköst, Adam Ramstedt 11/7 fráköst/5 stoðsendingar, Þorvaldur Orri Árnason 10, Friðrik Anton Jónsson 2.
Fráköst: 28 í vörn, 3 í sókn.
Höttur: Adam Eiður Ásgeirsson 19, Nemanja Knezevic 15/4 fráköst, Joshua James Martin 15/10 fráköst, Sveinn Búi Birgisson 13, Aleksandar Pantelic 12/4 fráköst, Marquis Jackson 12/6 stoðsendingar, Ásmundur Múli Ármannsson 6.
Fráköst: 19 í vörn, 7 í sókn.
Dómarar: Sigmundur Már Herbertsson, Jakob Árni Ísleifsson, Sigurbaldur Frímannsson.
Áhorfendur: 357
内容来自 mbl.is - Íþróttafréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗