Stjörnumenn á miklu skriði
Stjarnan er á mikilli siglingu í úrvalsdeild karla í körfubolta en liðið hafði betur gegn Keflavík, 113:94, í Garðabænum í kvöld.
Stjarnan hefur nú unnið þrjá leiki í röð og er í sjöunda sæti deildarinnar með sex stig. Keflavík er í fimmta með átta.
Stjörnumenn voru fjórum stigum yfir í hálfleik, 55:51, og völtuðu yfir Keflvíkinga í þriðja leikhluta. Þar skoraði Stjarnan 35 stig gegn 18 og var eftirleikurinn síðan auðveldur.
Hilmar Smári Henningsson og Nojel Imani Eastern skoruðu sitthvor 20 stigin fyrir Stjörnuna. Jamir Chaplin skoraði þá 25 stig fyrir Keflavík.
Stjarnan - Keflavík 113:94
ÞG Verk höllin, Bónus deild karla, 12. nóvember 2026.
Gangur leiksins:: 4:5, 9:15, 17:22, 25:29, 33:34, 39:38, 48:47, 55:51, 63:51, 69:60, 81:62, 90:69, 92:77, 101:84, 105:90, 113:94.
Stjarnan: Hilmar Smári Henningsson 20, Nojel Imani Eastern 20/5 fráköst/6 stoðsendingar, Bjarni Guðmann Jónson 19/4 fráköst, Ægir Þór Steinarsson 16/8 stoðsendingar, Loic Robin Schwartz 12/8 fráköst, Hilmir Arnarson 11/6 fráköst, Atli Hrafn Hjartarson 8, Milos Stajcic 7/9 fráköst.
Fráköst: 25 í vörn, 9 í sókn.
Keflavík: Jamir Chaplin 25/8 fráköst, Ali Abdou Dibba 18, Bragi Guðmundsson 17/6 fráköst, Jaka Brodnik 15/5 fráköst, Hilmar Pétursson 10, Robertas Jonaitis 7/6 fráköst, Jordan Kevin Williams 2.
Fráköst: 21 í vörn, 13 í sókn.
Dómarar: Gunnlaugur Briem, Bjarni Rúnar Lárusson, Friðrik Árnason.
Áhorfendur: 653
内容来自 mbl.is - Íþróttafréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗