Álftnesingar fyrstir til að sigra Val

Álftnesingarnir Jordan Semple og Sigurður Pétursson í baráttunni við Kára Jónsson. mbl.is/Karítas

Álftanes er komið í annað sæti úrvalsdeildar karla í körfubolta eftir sigur á Val, 80:68, í sjöttu umferðinni að Hlíðarenda í kvöld. 

Álftanes er í öðru sæti með tíu stig en Valur, sem tapaði sínum fyrsta leik í kvöld, er í fjórða sæti með tíu. Tindastóll er mitt á milli þeirra, einnig með tíu stig, og KR er á toppnum með tólf eða fullt hús stiga. 

Álftnesingar unnu fyrsta leikhlutann með tólf stigum, 21:9, en Valsmenn svöruðu í sömu mynt með því að vinna annan leikhluta með tólf stigum, 32:20, og var því jafnt í hálfleik, 41:41.

Álftnesingar unnu þriðja leikhluta með þremur stigum og þann fjórða með níu og því leikinn með tólf stigum.

Sigurður Pétursson skoraði 19 stig, tók tíu fráköst og gaf fjórar stoðsendingar í liði Álftaness en hjá Val skoraði Dwayne Lautier-Ogunleye 24 stig, tók fjögur fráköst og gaf stoðsendingu.

Valur - Álftanes 68:80

N1-höllin á Hlíðarenda, Bónus deild karla, 12. nóvember 2026.

Gangur leiksins:: 5:6, 5:9, 7:15, 9:21, 19:23, 28:30, 32:35, 41:41, 44:45, 47:55, 50:59, 56:59, 60:62, 65:70, 65:78, 68:80.

Valur: Dwayne Lautier-Ogunleye 24/4 fráköst, Jelani Earl Simmons 22/5 fráköst, Kári Jónsson 10/6 stoðsendingar, Kristófer Acox 6/10 fráköst, Pablo Cesar Bertone 4, Hjálmar Stefánsson 2/9 fráköst/3 varin skot.

Fráköst: 22 í vörn, 12 í sókn.

Álftanes: Sigurður Pétursson 19/10 fráköst, Dedrick Deon Basile 15/7 fráköst/5 stoðsendingar, Jordan Semple 15/7 fráköst/3 varin skot, Martins Laksa 12/8 fráköst, Haukur Helgi Briem Pálsson 9, Frank Aron Booker 5, Dúi Þór Jónsson 3, Collin Anthony Pryor 2/5 fráköst.

Fráköst: 26 í vörn, 17 í sókn.

Dómarar: Davíð Kristján Hreiðarsson, Birgir Örn Hjörvarsson, Bergur Daði Ágústsson.

Áhorfendur: 423

内容来自 mbl.is - Íþróttafréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅