Krafðist 8,5 milljóna en fær ekki bætur
Konan eignaðist barn árið 2023 og tók sjö og hálfs mánaðar fæðingarorlof. Hún hélt því fram að áður hefði verið samið munnlega um lengri fjarveru hennar frá störfum en héraðsdómur taldi það ósannað. Ljósmynd/Colourbox
Landsréttur hefur staðfest sýknudóm yfir fyrirtæki sem kona krafði um skaða- og miskabætur vegna starfsloka eftir fæðingarorlof og launalaust leyfi.
Konan taldi sér hafa verið vikið ólöglega úr starfi en niðurstaða héraðsdóms, sem Landsréttur staðfesti í dag, var að hún hefði sjálf slitið ráðningarsambandinu með því að mæta ekki aftur til vinnu.
Konan krafðist tæplega 5,5 milljóna króna vegna fjárhagslegs tjóns og þriggja milljóna króna í miskabætur. Til vara krafðist hún viðurkenningar á skaðabótaskyldu fyrirtækisins vegna fjárhagslegs tjóns, auk miskabóta.
Landsréttur staðfesti dóm Héraðsdóms Reykjavíkur frá 25. september í fyrra með vísan til forsendna hans um að fyrirtækið hefði ekki sýnt af sér saknæma og ólögmæta háttsemi.
Óskaði eftir leyfi fram á haust
Konan eignaðist barn árið 2023 og tók sjö og hálfs mánaðar fæðingarorlof. Hún hélt því fram að áður hefði verið samið munnlega um lengri fjarveru hennar frá störfum en héraðsdómur taldi það ósannað.
Vegna fjölskylduaðstæðna og skorts á dagvistun óskaði konan eftir launalausu leyfi fram á haust 2024. Fyrirtækið hafnaði svo löngu leyfi en bauð henni þess í stað um fimm mánaða launalaust viðbótarleyfi.
Konan taldi sig ekki geta snúið aftur til vinnu fyrr en barnið fengi leikskólapláss. Stéttarfélag hennar hafði milligöngu um samskipti við fyrirtækið en ekki náðist samkomulag um lengra leyfi eða starfslokasamning.
Talið hafa uppfyllt skyldur sínar
Héraðsdómur taldi nægilega fram komið að konan hefði verið í vandasamri stöðu vegna fjölskylduaðstæðna og skorts á dagvistunarúrræðum. Á fyrirtækinu hefðu því hvílt skyldur samkvæmt jafnréttislögum til að koma til móts við hana.
Dómurinn taldi fyrirtækið hafa uppfyllt þær skyldur með boði sínu um launalaust viðbótarleyfi. Konan hefði ekki sérstaklega sóst eftir hlutastarfi á tímabilinu heldur ítrekað að hún kæmist ekki aftur til starfa fyrr en um haustið.
Því var hafnað að fyrirtækið hefði mismunað henni á grundvelli kyns eða brotið gegn jafnréttislögum eða lögum um fæðingar- og foreldraorlof.
Konunni hefði áfram staðið starfið til boða að loknu því viðbótarleyfi sem fyrirtækið bauð henni. Hún hefði hins vegar ekki mætt aftur til vinnu og síðar kvatt samstarfsfólk sitt á Facebook-síðu starfsmanna. Við þær aðstæður yrði ekki fallist á að henni hefði verið vikið fyrirvaralaust úr starfi. Hún yrði talin hafa sjálf slitið ráðningarsambandinu.
Ný yfirlýsing breytti ekki niðurstöðunni
Héraðsdómur taldi jafnframt að fjárhagslegt tjón konunnar væri ósannað, jafnvel þótt fallist hefði verið á að fyrirtækið hefði sýnt af sér saknæma og ólögmæta háttsemi.
Staðgreiðsluskrá sýndi að hún hefði fengið hærri launatekjur frá fyrirtæki í eigu föður síns en hún hafði haft hjá fyrri vinnuveitanda. Hún hélt því fram að hún hefði ekki unnið fyrir greiðslunum og ætti að endurgreiða þær, en héraðsdómur taldi þær staðhæfingar ósannaðar.
Fyrir Landsrétti lagði konan fram yfirlýsingu föður síns um að fyrirtæki hans hygðist endurkrefja hana um launin þar sem hún hefði ekki unnið fyrir því. Landsréttur taldi yfirlýsinguna ekki hafa þýðingu fyrir úrslitin. Þegar hefði verið komist að þeirri niðurstöðu að fyrri vinnuveitandinn hefði ekki sýnt af sér saknæma og ólögmæta háttsemi og bæri því að sýkna hann.
Málskostnaður var látinn falla niður á báðum dómstigum.
内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗