Skoða það að rifta samningi Stones eftir nokkra mánuði á Ítalíu

John Stones, fyrrverandi varnarmaður Manchester City, gæti verið á leið frá Inter Milan aðeins fjórum mánuðum eftir að hann gekk til liðs við ítalska stórliðið.

Stones, sem er 32 ára, samdi við Inter til tveggja ára síðasta sumar eftir að samningur hans við Manchester City rann út.

Englendingurinn átti að færa vörn Inter reynslu og gæði en hefur glímt við þrálát meiðsli síðan hann kom til Ítalíu.

Hann hefur aðeins leikið fjóra leiki fyrir félagið og hefur verið frá keppni vegna meiðsla í læri síðan um miðjan september.

Samkvæmt Gazzetta dello Sport gæti Inter ákveðið að losa sig við Stones í janúar takist honum ekki að ná fullri heilsu.

Þá kemur einnig til greina að félagið rifti samningi hans eða skilji hann eftir utan leikmannahópsins.

Stones vann sex Englandsmeistaratitla og Meistaradeildina á tíu árum hjá Manchester City.

Everton hefur áður verið orðað við endurkomu varnarmannsins.

内容来自 DV.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅