Saksóknari vill 14 ára fangelsi yfir foreldrum drengs sem lést úr krabbameini

Ritstjórn DV

Ritstjórn DV

Fimmtudaginn 12. nóvember 2026 21:30

Sérfræðingar telja að hægt hefði verið að bjarga lífi drengsins ef hann hefði fengið rétta meðferð í tæka tíð.

Ítalskir foreldrar eiga yfir höfði sér þunga fangelsisdóma vegna dauða 14 ára sonar síns sem lést úr beinkrabbameini árið 2024. Foreldrarnir treystu á umdeilda óhefðbundna meðferð í stað viðurkenndra læknisfræðilegra úrræða.

Sérfræðingar telja að hægt hefði verið að bjarga lífi drengsins ef hann hefði fengið rétta meðferð í tæka tíð.

Saksóknari á Ítalíu hefur farið fram á að hjónin Luigi Gianello og Martina Binotto verði hvort um sig dæmd í 14 ára fangelsi vegna dauða sonar þeirra, Francesco Gianello, sem lést 14 ára að aldri í janúar 2024.

Ítalska fréttastofan ANSA greinir frá þessu.

Foreldrarnir eru ákærðir fyrir manndráp af ásetningi, en ákæran byggist á því að þau hafi gert sér grein fyrir hættunni sem fólst í því að hafna viðurkenndri krabbameinsmeðferð en engu að síður tekið þá áhættu.

Ráðlagt að nota leir og bólgueyðandi lyf

Francesco greindist árið 2022 með svokallað beinsarkmein, illkynja krabbamein í lærlegg.

Í stað þess að fylgja ráðleggingum lækna leituðu foreldrarnir til læknis sem aðhylltist svokallaða Hamer-aðferð. Sú aðferð byggist á kenningum þýska læknisins Ryke Geerd Hamer, sem hélt því fram að alvarlegir sjúkdómar, þar á meðal krabbamein, ættu rætur að rekja til sálrænna áfalla. Kenningar hans eiga sér enga stoð í viðurkenndum læknavísindum.

Læknirinn, sem starfaði í Padúa, er sagður hafa ráðið foreldrunum frá því að láta taka vefjasýni úr drengnum. Þess í stað hafi hann mælt með meðferð með leir og bólgueyðandi lyfjum.

Síðar hafi verið lagt til að drengurinn færi í einhvers konar líkamlega styrkingarmeðferð á stofnun í Toskana.

Ástand Francesco versnaði hins vegar stöðugt. Að lokum hófst hefðbundin krabbameinslyfjameðferð, en þá var sjúkdómurinn orðinn svo langt genginn að ekki tókst að bjarga lífi hans.

Telja að hægt hefði verið að bjarga honum

Við réttarhöldin í Vicenza hafa niðurstöður tveggja sérfræðinga, sem dómstóllinn fékk til að rannsaka málið, vegið þungt.

Sérfræðingarnir Antonello Cirnelli og Franca Fagioli fóru yfir sjúkragögn drengsins og komust að þeirri niðurstöðu að hægt hefði verið að bjarga lífi hans með tímanlegri krabbameinslyfjameðferð og skurðaðgerð.

Niðurstöðurnar ganga gegn málflutningi verjenda foreldranna, sem hafa haldið því fram að ekki sé hægt að sýna fram á bein orsakatengsl milli ákvarðana þeirra og dauða sonarins.

Málið hafði áður komið til kasta barnaverndaryfirvalda á Ítalíu, sem hófu málsmeðferð til að svipta foreldrana forsjá eftir að þeim barst tilkynning um aðstæður drengsins.

Paolo Fietta saksóknari fór fram á 14 ára fangelsisdóm yfir hvoru foreldri við lok málflutnings ákæruvaldsins í gær.

Búist er við að dómur verði kveðinn upp á næstu vikum.

Fleiri fréttir

内容来自 DV.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅