Framarar aftur á beinu brautina

Haukur Ingi Hauksson var markahæstur hjá Frömurum í kvöld.

Haukur Ingi Hauksson var markahæstur hjá Frömurum í kvöld. mbl.is/Anton Brink

Fram er komið á breinu brautina í úrvalsdeild karla í handbolta eftir sigur gegn HK í 10. umferð deildarinnar í Úlfarsárdalnum í kvöld.

Leiknum lauk með fjögurra marka sigri Fram, 32:28, en þeir Haukur Ingi Hauksson og Ívar Logi Styrmisson voru markahæstir hjá Frömurum með sjö mörk hvor.

Framarar eru með 8 stig í sjöunda sætinu og hafa unnið fjóra leiki í deildinni í ár en HK er með 6 stig í tíunda sætinu, stigi frá fallsæti.

Framarar voru sterkari aðilinn í leiknum og leiddu með fimm mörkum í hálfleik, 16:11.

Kári Tómas Hauksson var markahæstur hjá HK með ellefu mörk og Gunnar Dan Hlynsson skoraði sex.

Mörk Fram: Haukur Ingi Hauksson 7, Ívar Logi Styrmisson 7, Max Emil Stenlund 6, Dagur Fannar Möller 4, Viktor Sigurðsson 3, Kjartan Þór Júlíusson 2, Arnar Snær Magnússon 2, Marel Baldvinsson 1.

Varin skot: Arnór Máni Daðason 8.

Mörk HK: Kári Tómas Hauksson 11, Gunnar Dan Hlynsson 6, Trúgvi Hávardsson 4, Alex Máni Oddnýjarson 3, Tómas Sigurðarson 2, Örn Alexandersson 1, Tómas Bragi Lorriaux Starrason 1.

Varin skot: Brynjar Vignir Sigurjónsson 11.

内容来自 Mbl.is - Íþróttir - Handbolti,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅