Tindastóll óstöðvandi í Evrópu

Tindastólsmenn hafa spilað frábærlega í Evrópu.

Tindastóll er enn með fullt hús stiga í Norður-Evrópudeildinni, ENBL, eftir sigur á svissneska liðinu Lausanne, 79:69, á Sauðárkróki í kvöld.

Tindastóll hefur unnið fyrstu fjóra leiki sína í Norður-Evrópudeildinni og er í öðru sæti með átta stig, jafnmörg og topplið Syntainics MBC frá Þýskalandi.

Þetta var fyrsti leikur Tindastóls á heimavelli í Evrópukeppninni en fyrstu þrír sigrarnir komu allir á útivelli.

Tindastóll var fimm stigum yfir í hálfleik, 41:36, og jók forskot sitt í þeim seinni.

Nemanja Djurisic skoraði 17 stig, tók átta fráköst og gaf þrjár stoðsendingar í liði Tindastóls en Ragnar Ágústsson skoraði 13 stig, tók sex fráköst og gaf eina stoðsendingu.

Sigtryggur Arnar Björnsson og Ade Murkey skoruðu þá ellefu stig hvor.

Tindastóll mætir Dubrava frá Króatíu ytra í næsta Evrópuleik sínum næstkomandi þriðjudag.

内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅