Nú getur hver sem er orðið vörubílstjóri á Íslandi

Fólk hvaðanæva í heiminum keyrir nú vörubíl á Íslandi í tölvuleiknum. Skjáskot/Euro Truck Simulator 2

Tékkneski tölvuleikurinn Euro Truck Simulator 2 hefur nú innleitt viðbótarpakka fyrir spilendur sem gerir að verkum að þeir geti keyrt um Ísland. 

Tölvuleikurinn gengur, eins og nafnið bendir til, út á að keyra vörubíla en raunheimurinn er fyrirmyndin sem tölvuleikurinn byggir vegakerfið á. 

Nú geta vörubílstjórar þess vegna keyrt hringveginn um Ísland hvar sem er í heiminum.

Ölfusárbrúin gamla á Selfossi tekur sig vel út. Ætli þeirri nýju verði bætt við í netheimum þegar hún rís í kjötheimum? Skjáskot/Euro Truck Simulator 2

Keyrt yfir Ölfursárbrúna

„Þetta er í fyrsta skipti í sögu tölvuleikja sem tölvuleikjaspilarar geta búist við nákvæmu korti af Íslandi í nútímanum sem tekur þá í gegnum land íss og elda út frá sjónarhorni vörubílstjórans,“ segir í tilkynningu frá SCS Software sem framleiðir leikinn.

Fyrirtækið segir leikinn bjóða upp á „allt frá ísi lögðum víðáttum, dramatískum strandlengjum og svörtum söndum til kraftmikilla fossa, hvassra vindhviða og heillandi borga.“

Selfoss og Akureyri má til að mynda sjá á skjáskotunum hér að neðan auk myndskeiðs.

Akueyri er að sjálfsögðu á sínum stað.

Akueyri er að sjálfsögðu á sínum stað. Skjáskot/Euro Truck Simulator 2

Atvinnuvegirnir þurfa á vörubílstjórum að halda og öfugt.

Atvinnuvegirnir þurfa á vörubílstjórum að halda og öfugt. Skjáskot/Euro Truck Simulator 2

Norðurljósin hafa lengi einkennt Ísland að vetrarlagi. Leikurinn er ansi raunverulegur miðað við þetta skjáskot. Skjáskot/Euro Truck Simulator 2

Ef til vill eru lesendur sem kannast við sig á þessum stað. Skjáskot/Euro Truck Simulator 2

Stuðlagil er nú þegar vinsæll staður meðal ferðamanna á Íslandi. Nú getur fólk fengið smjörþefinn af upplifuninni heima hjá sér við tölvuskjáinn. Skjáskot/Euro Truck Simulator 2

Vörubílstjórum leiðist ábyggilega ekki að keyra í íslenskri náttúru.

Vörubílstjórum leiðist ábyggilega ekki að keyra í íslenskri náttúru. Skjáskot/Euro Truck Simulator 2

内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅