Barnabarnabarn Agöthu Christie ræddi við Ragnar
Ragnar Jónasson rithöfundur hefur þýtt bækur eftir Agöthu Christie en bæði eru þekki fyrir glæpasögur sína. Þarna ræðir hann við James Prichard sem er barnabarnabarn Agöthu Christie. mbl.is/Karítas
Ragnar Jónasson rithöfundur og skipuleggjandi Iceland Noir-bókmenntahátíðarinnar ræddi við heiðursgest hennar, James Prichard, í Fríkirkjunni í dag.
James er framkvæmdastjóri fjölskyldufyrirtækisins Agatha Christie Limited enda barnabarnabarn glæpasagnadrottingarinnar frá Bretlandi. Faðir James rak áður fyrirtækið sem sér um allt sem tengist útgáfu verka hennar í dag.
Bækur langömmu James eru löngu orðnar sígildar og eru endurútgefnar um allan heim. Þá hafa einnig verið gefnar út kvikmyndaaðlaganir byggðar á sögum hennar svo eitthvað sé nefnt.
Áhugamenn um glæpasögur komu saman í Fríkirkjunni til að heyra á samtal James við Ragnar sem er mikill aðdáandi Agöthu Christe.
James ræddi við Morgunblaðið á dögunum. Iceland Noir hófst í gær og stendur lýkur á laugardagskvöldið.
内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗



