Adidas kynnir óvenjulega útgáfu af treyjum þriggja stórliða
Íþróttavöruframleiðandinn Adidas hefur kynnt nýja og óvenjulega útgáfu af treyjum Arsenal, Liverpool og Manchester United.
Um er að ræða prjónaðar útgáfur af heimtreyjum félaganna sem verða hluti af sérstakri vörulínu fyrir jólin.
Treyjurnar eru síðerma og halda útliti hefðbundinna keppnistreyja, en í stað auglýsinga á brjóstinu er nafn viðkomandi félags.
Arsenal-treyjan er þegar komin í sölu í Bretlandi en útgáfur Liverpool og Manchester United eru væntanlegar fyrir jól.
Á bakhlið Arsenal-treyjunnar er jafnframt prjónuð talan tíu.
Þetta er í fyrsta sinn sem Adidas framleiðir treyjur af þessu tagi.
Aðeins félög sem eru í svokölluðum „Elite“-flokki Adidas fá þessa sérstöku vörulínu.
Arsenal, Liverpool og Manchester United eru öll í þeim flokki, ásamt meðal annars Real Madrid og Juventus.
Newcastle, Leeds og Aston Villa eru hins vegar í lægri flokki hjá Adidas og fá því ekki aðgang að öllum sérútgáfum framleiðandans.
内容来自 DV.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗