Fyrsti sigur Njarðvíkinga
Njarðvík vann sigur á Ármanni, 107:97, í sjöttu umferð úrvalsdeildar karla í körfubolta í Njarðvík í kvöld.
Njarðvík hafði tapað öllum fimm leikjum sínum fyrir leik kvöldsins en er nú með tvö stig í níunda sæti. Ármann er enn án sigurs og situr í botnsætinu með ekkert stig.
Ármann vann fyrsta leikhluta með sjö stigum, 35:28, en Njarðvík vann hina þrjá og leikinn.
Brynjar Kári Gunnarsson átti stórleik fyrir Njarðvík og skoraði 28 stig, tók sex fráköst og gaf fimm stoðsendingar. David Okeke skoraði þá 24 stig.
Hjá Ármanni fór Kinyon Hodges á kostum en hann skoraði 29 stig, tók fimm fráköst og gaf níu stoðsendingar.
内容来自 mbl.is - Íþróttafréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗