FH stöðvaði sigurgöngu Íslandsmeistaranna

Ómar Darri Sigurgeirsson fór mikinn í kvöld.

Ómar Darri Sigurgeirsson fór mikinn í kvöld. mbl.is/Anton Brink

FH er komið í annað sæti úrvalsdeildar karla í handbolta eftir sigur gegn Íslandsmeisturum Vals í 10. umferð deildarinnar í Kaplakrika í kvöld.

Leiknum lauk með nokkuð öruggum sigri FH, 35:31, en Eiður Rafn Valsson og Ómar Darri Sigurgeirsson voru markahæstir hjá Hafnfirðingum með sjö mörk hvor úr átta skotum.

FH er með 15 stig í öðru sætinu, fimm stigum minna en topplið Hauka, en þetta var annar sigur Hafnfirðinga í röð.

Fimm sigurleikir í röð

Valsmenn, sem höfðu unnið fimm leiki í röð í deildinni, eru í þriðja sætinu með 14 stig en þetta var þriðja tap liðsins á tímabilinu.

Valsmenn leiddu með einu marki í hálfleik, 18:17, en FH-ingar snéru leiknum sér í vil þegar fimmtán mínútur voru til leiksloka.

Jón Þórarinn Þorsteinsson varði 15 skot í marki FH og var með 38 prósent markvörslu en Gunnar Róbertsson var atkvæðamestur í liði Vals með átta mörk.

Mörk FH: Eiður Rafn Valsson 7, Ómar Darri Sigurgeirsson 7, Símon Michael Guðjónsson 6, Ágúst Guðmundsson 5, Jón Bjarni Ólafsson 4, Brynjar Narfi Arndal 1, Antoine Óskar Pantano 1, Leonharð Þorgeir Harðarson 1, Jón Þórarinn Þorsteinsson 1, Gunnar Kári Bragason 1, Einar Örn Sindrason 1.

Varin skot: Jón Þórarinn Þorsteinsson 15, Ólafur Rafn Gíslason 1.

Mörk Vals: Gunnar Róbertsson 7, Andri Finnsson 7, Allan Norðberg 5, Bjarni I Selvindi 4, Arnór Snær Óskarsson 4, Dagur Leó Fannarsson 2, Tjörvi Týr Gíslason 1, Bjarki Snorrason 1.

Varin skot: Björgvin Páll Gústavsson 10.

内容来自 Mbl.is - Íþróttir - Handbolti,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅