Vill einfalda leyfisferla og hækka aflmörk

Jóhann Páll Jóhannsson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra

Stærðarmörk virkjana sem falla undir rammaáætlun hækka úr 10 MW í 25 MW verði nýtt frumvarp Jóhanns Páls Jóhannssonar, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra, að lögum.

Þá verða leyfisumsóknir og umhverfismat unnin samhliða. Ráðuneyti Jóhanns Páls hefur kynnt drög að frumvarpinu í Samráðsgátt stjórnvalda.

Drögin taka einnig til samninga við landeigendur, verndar raflína og bakgrunnsathugana á starfsfólki sem hefur aðgang að viðkvæmum raforkuinnviðum.

Leyfisumsókn og umhverfismat samþætt

Samkvæmt drögunum verður meginregla að leyfisumsókn og umhverfismat séu samþætt þegar framkvæmd er háð virkjunarleyfi, nýtingarleyfi á auðlindum í jörðu, starfsleyfi vegna mengunarvarna eða heimild til breytingar á vatnshloti.

Þannig megi hefja vinnslu leyfisumsókna á meðan umhverfismat stendur yfir og samræma tímaáætlanir stjórnvalda.

Þá á að verða einfaldara að uppfæra umhverfismat þegar forsendur breytast eða ný gögn koma fram, meðal annars þegar leyfi hefur verið fellt úr gildi vegna annmarka á mati.

Í stað þess að endurtaka matsferlið í heild verður viðbótarvinna og kynning afmörkuð við þau atriði sem breytingarnar varða.

„Skýrari málsmeðferð er jafnframt mikilvæg til að tryggja að almenningur og umsagnaraðilar fái tækifæri til að fjalla um nýjar upplýsingar sem geta haft verulega þýðingu fyrir niðurstöðu máls,“ segir í drögunum.

Skýrari reglur um samningaviðræður

Ágreiningur um landréttindi, tilhögun framkvæmda eða fjárhæð bóta getur að mati ráðuneytisins tafið verkefni þótt annar undirbúningur sé langt kominn.

Frumvarpið felur því í sér skýrari reglur um samningaviðræður við landeigendur og meðferð eignarnámsmála.

Þá er lagt til að raforkulagnir verði að jafnaði lagðar innan veghelgunarsvæða þar sem því verður við komið, í samráði við veghaldara og með leyfi hans.

Skylt að afla upplýsinga og hafa samráð

Reglur um tengingu nýrra virkjana og stórnotenda við kerfið eiga að verða skýrari, meðal annars þannig að tengigjöld taki mið af heildaráhrifum tenginga á raforkukerfið auk þess sem Landsnet fái lagaheimild fyrir svokölluðu innmötunargjaldi. 

„Með því geta skapast forsendur til verulegrar lækkunar á hamlandi upphafskostnaði sem staðið hefur atvinnuuppbyggingu, sérstaklega á viðkvæmum kerfissvæðum, fyrir þrifum.“

Framkvæmdir í grennd við raflínur, jafnt á landi sem í sjó, geta valdið skemmdum og truflað afhendingu raforku. Í frumvarpinu er því kveðið skýrar á um vernd raflína.

Þeim sem hyggja á framkvæmdir nálægt línum verður skylt að afla upplýsinga og hafa samráð áður en verk hefst og ábyrgð vegna tjóns og röskunar er skýrð.

Einnig er lagður til afmarkaður lagarammi um bakgrunnsathuganir á fólki í störfum sem veita aðgang að viðkvæmum raforkuinnviðum, stjórnkerfum eða upplýsingum.

Aflmörk rammaáætlunar hækka

Samkvæmt tillögunni hækkar viðmið rammaáætlunar fyrir rafafl úr 10 MW í 25 MW og fyrir varmaafl úr 50 MW í 125 MW. Sérreglur um vindorku haldast óbreyttar.

„Verulegur munur á umfangi málsmeðferðar eftir því hvort uppsett afl er undir eða yfir 10 MW getur hvatt framkvæmdaaðila til að halda afli undir viðmiðinu þótt aðstæður gefi kost á meiri orkuvinnslu,“ segir í drögum ráðuneytisins.

Þannig sé hætta á að aflmarkið ráði útfærslu framkvæmdar fremur en hagkvæm nýting viðkomandi virkjunarkosts. 

„Hækkun aflmarkanna getur því stuðlað að hlutfallslega betri nýtingu auðlinda og innviða miðað við umfang rasks.“

Umsagnarfrestur í Samráðsgátt er til og með 26. nóvember næstkomandi.

内容来自 Mbl.is - Innlendar fréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅