Á bílaflota fyrir 180 milljónir króna - Orð hans í vikunni vekja því mikla athygli
Jude Bellingham, miðjumaður Real Madrid og enska landsliðsins, á glæsilegan bílaflota sem er metinn á rúmlega eina milljón punda, jafnvirði um 180 milljóna íslenskra króna.
Það er þó einn hængur á. Bellingham, sem er 23 ára, kann ekki að keyra!
Englendingurinn greindi frá þessu í viðtali við breska Vogue á dögunum.
„Ég kann ekki að elda og ég kann ekki að keyra. Ég er góður í því sem ég geri, en öðru? Ekki sérstaklega,“ sagði Bellingham.
Þrátt fyrir það hefur stórstjarnan komið sér upp glæsilegum bílaflota. Hann treystir hins vegar á fjölskyldu og vini til að keyra sig á æfingar og í leiki.
Samkvæmt The Sun eru sjö lúxusbílar í safni Bellingham, þar á meðal Lamborghini, Range Rover og nokkrar gerðir frá BMW og Mercedes-Benz.
Dýrasti bíllinn er Lamborghini Urus Performante, sem kostar 209 þúsund pund og getur náð 305 kílómetra hraða.
Bílafloti Bellingham samkvæmt The Sun:
- Lamborghini Urus Performante – 209.000 pund
- Mercedes-AMG G63 – 180.000 pund
- BMW XM Label – 155.000 pund
- Mercedes-Benz GLE Coupé – 150.000 pund
- Range Rover Autobiography LWB – 125.000 pund
- BMW iX M60 – 122.000 pund
- BMW i7 xDrive60 – 115.000 pund
Samanlagt verðmæti bílanna er 1.056.000 pund.
Bellingham þarf því ekki að hafa áhyggjur af bílleysi þegar hann loksins fær bílprófið!
内容来自 DV.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗