Glúmur braut tvö rifbein - Lýsir ævintýralegri atburðarás og heimtar bætur
Glúmur Baldvinsson, alþjóðastjórnmálafræðingur, er rifbeinsbrotinn og segir skósmið bera ábyrgð á brotinu. Í gamansamri færslu lýsir Glúmur því hvernig þetta vildi allt til og segir hann frásögnina ekki fyrir viðkvæma.
Segi Glúmur svo frá að fyrir viku hafi reimarnar slitnað á skóm hans. Hann hafi því farið til skósmiðsins á annarri hæð Kringlunnar, þar sem hann bað um nýjar reimar og fínpússun skóna í leiðinni.
„Hálftíma síðar voru skórnir klárir. Ég reimaði og gekk á brott. Degi síðar tók ég eftir að reimarnar voru helst til langar. Þvældust fyrir. En ok hugsaði ég. Vandamálin geta náð lengra.“
Viku síðar fór Glúmur með dóttur sinni í sumarbústað og þar fóru þau í heita pottinn. Dóttirin fór á undan Glúmi upp úr.
„Hálftíma síðar fannst mér nóg komið og steig upp úr og í skóna en nennti ekki að reima enda þriggja þrepa labb svo reimarnar drógust á eftir mér. Ég geng inn og skelli dyrum og ætla að taka næstu skref nema að þá voru reimarnar læstar í hurðinni svo ég dúndraðist í gólfið og braut tvö rifbein og get nú hvorkið hlegið né hóstað næstu vikurnar. Góðu fréttirnar eru þó þær að ég á mál á hendur skósmiðnum í Kringlunni sem vísvitandi seldi mér of langar reimar.“
Segir hann lögmann sinn með málið í sínum höndum.
„Ég heimta bætur. Þetta verða löng málaferli.“
内容来自 DV.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗