Guðjón Valur úr leik

Guðjón Valur Sigurðsson er þjálfari Gummersbach.

Guðjón Valur Sigurðsson er þjálfari Gummersbach. Ljósmynd/Gummersbach

Lærisveinar Guðjóns Vals Sigurðssonar í Gummersbach eru úr leik í þýska bikarnum í handbolta eftir naumt tap fyrir Flensburg, 35:34, í Flensburg í kvöld. 

Flensburg er komið áfram í átta liða úrslitin en landsliðsmaðurinn Arnar Freyr Arnarsson er leikmaður liðsins. Hann skoraði ekki í leiknum. 

Hjá Gummersbach skoruðu Elliði Snær Viðarsson og Teitur Örn Einarsson sitthvor tvö mörkin. Garðar Ingi Sindrason skoraði þá eitt. 

Reynir Stefánsson skoraði fimm mörk í tíu marka sigri Melsungen á lærisveinum Arnórs Þórs Gunnarssonar í Bergischer, 36: 26, í Melsungen.

Melsungen er komið í átta liða úrslitin með sigrinum. 

内容来自 Mbl.is - Íþróttir - Handbolti,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅