Ótrúlegt gengi Hafnfirðinga hélt áfram

Skarphéðinn Ívar Einarsson fór á kostum í kvöld.

Skarphéðinn Ívar Einarsson átti sannkallaðan stórleik fyrir Hauka þegar liðið tók á móti Þór í 10. umferð úrvalsdeildar karla í handbolta á Ásvöllum í kvöld.

Leiknum lauk með öruggum sigri Hauka, 35:26, en Skarphéðinn gerði sér lítið fyrir og skoraði tólf mörk í leiknum.

Þetta var tíundi sigur Hauka í deildinni í jafn mörgum leikjum en liðið trónir á toppi deildarinnar með 20 stig eða fullt hús stiga. Þetta var þriðja tap Þórsara í röð en liðið er með 6 stig í áttunda sætinu, stigi frá fallsæti.

Haukar leiddu með þremur mörkum í hálfleik, 17:14, en Hafnfirðingar voru mun sterkari aðilinn í síðari hálfleik.

Aron Rafn Eðvarsson lokaði markinu fyrir Hauka, varði 16 skot og var með 42 prósent markvörslu en William Skovager var markahæstur hjá Þórsurum með sjö mörk.

Mörk Hauka: Skarphéðinn Ívar Einarsson 12, Andri Fannar Elísson 8, Freyr Aronsson 5, Sigurður Jefferson Guarino 3, Hergeir Grímsson 3, Össur Haraldsson 2, Birkir Snær Steinsson 1, Daníel Máni Sigurgeirsson 1.

Varin skot: Aron Rafn Eðvarðsson 16, Grétar Ari Guðjónsson 4.

Mörk Þórs: William Skovager 7, Hafþór Már Vignisson 6, Bertram Simonsen 4, Brynjar Hólm Grétarsson 4, Mikkel Bak Scheumann Jensen 2, Hákon Ingi Halldórsson 2, Jóhann Geir Sævarsson 1.

Varin skot: Nikola Radovanovic 16.

内容来自 mbl.is - Íþróttafréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅