Lyf úr múmíum vekur áhuga vísindamanna
Múmía á safni í Guanajuato í Mexíkó. Ný rannsókn á lyfi úr egypskum múmíum hefur sýnt verndandi áhrif gegn flensuveiru í frumutilraunum. AFP/Mario Armas
Efni úr lyfi sem unnið var úr líkamsleifum egypskra múmía hefur sýnt verndandi áhrif gegn inflúensuveiru í frumutilraunum. Enn er óljóst hvaða innihaldsefni skýra áhrifin og hvort þau geti gagnast mönnum.
Lyfið nefndist Mumia vera aegyptiaca og var notað til lækninga að minnsta kosti frá því um 1300. Á miðöldum töldu læknar að lækningamáttur hinna látnu gæti færst yfir til hinna lifandi. Í sögulegum heimildum var meðal annars mælt með lyfinu til að lina höfuðverk, hósta, hálsbólgu og svima.
Lengi hefur reynst erfitt að ákvarða nákvæmlega hvað slík lyf innihéldu og hvort þau hafi haft einhverja virkni. Ný rannsókn undir forystu vísindamanna við Marburg-háskóla í Þýskalandi varpar nú frekara ljósi á samsetningu þeirra. Niðurstöðurnar birtust í vísindatímaritinu Proceedings of the National Academy of Sciences.
Ferðamenn skoða múmíur á safni í Guanajuato í Mexíkó. Á miðöldum voru líkamsleifar egypskra múmía notaðar til lækninga, meðal annars gegn hósta og höfuðverk. AFP/Mario Armas
Óljóst hvaða efni skýra áhrifin
Rannsakendur greindu 24 muni í eigu safna, þar á meðal lyf úr múmíum, varðveitta líkamshluta, vafninga og leifar smurningarefna. Efnasamsetning sýnanna reyndist mjög breytileg en í mörgum þeirra fundust efni úr trjákvoðu barrtrjáa.
Þar sem fyrri rannsóknir hafa sýnt að tiltekin efni í trjákvoðu geta haft virkni gegn sýklum könnuðu vísindamennirnir einnig hvort nokkur sýnanna hefðu slíka eiginleika.
Efni sem unnið var úr einu lyfjasýninu virtist verja ræktaðar frumur gegn skaða af völdum inflúensuveiru. Eitt helsta efnasambandið í sýninu hafði hins vegar ekki sömu áhrif þegar það var prófað eitt og sér. Enn er því óljóst hvaða innihaldsefni höfðu þessi verndandi áhrif.
Vísindamennirnir leggja áherslu á að niðurstöður frumutilraunanna nægi ekki til að álykta að lyfið hafi sambærileg áhrif í mönnum.
Á miðöldum töldu læknar að lækningamáttur hinna látnu gæti færst yfir til hinna lifandi. AFP/Mario Armas
Aloe greinist í smurningarefnum
Í tveimur sýnum fundust einnig efnasambönd úr aloe-plöntum. Það bendir til þess að efni úr plöntunum hafi í einhverjum tilvikum verið notuð við smurningu.
Talið er að þetta sé í fyrsta sinn sem aloe greinist í smurningarefnum með sameindagreiningu.
Í miðaldatextum var vísað til tengsla aloe og lyfja úr múmíum en vísindamenn höfðu talið þær frásagnir byggjast á tilgátum. Niðurstöðurnar benda nú til þess að tengslin kunni að eiga sér dýpri sögulegar rætur.
内容来自 Mbl.is - Ferðalög,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗

