Jensen Huang: Fall gervigreindarkóngsins
Jensen Huang, stofnandi Nvidia og forstjóri í 33 ár, sagði af sér í dag eftir að hafa játað framhjáhald í kjölfar frétta af nánu sambandi hans við konu sem bandarísk yfirvöld telja kínverskan njósnara.
Greint var frá því í síðasta mánuði að Huang hefði stofnað til náins sambands við Alice Huang, kínverskan stjórnanda sem tengist gagnaversfyrirtækinu Megaspeed í Singapúr. Þau eru ekki skyld þrátt fyrir sameiginlegt ættarnafn.
Þann áttunda nóvember játaði Huang framhjáhald í tölvupósti til starfsmanna Nvidia og stjórn fyrirtækisins hóf óháða rannsókn.
Alice Huang starfaði áður sem sjónvarpsfréttakona í Kína, samkvæmt New York Times (NYT). Samkvæmt Wall Street Journal hitti hún Jensen fyrst á viðburði Nvidia í Kaliforníu snemma árs 2024. Erlendir fjölmiðlar segja ekki vitað hvar hún er nú.
Ekki er talið að forstjórinn hafi vitað af meintri upplýsingaöflun hennar.
Kínverjar vísa ásökunum á bug
Samkvæmt NYT og Financial Times (FT) telja bandarísk yfirvöld að kínverska öryggisráðuneytið (MSS) hafi fengið Alice Huang, sem einnig gengur undir nafninu Huang Le, til að afla upplýsinga um Jensen Huang.
Samkvæmt Forbes er talið að markmiðið hafi meðal annars verið að hafa áhrif á afstöðu Nvidia til útflutningsreglna um háþróaða örgjörva.
Megaspeed er viðskiptavinur Nvidia og kaupir gervigreindarflögur fyrirtækisins. Alice Huang varð stjórnandi þar árið 2023.
Talsmaður Nvidia sagði við NYT að samskipti Jensens við Alice Huang hefðu ekki verið óvenjuleg og að félagið deildi ekki trúnaðarupplýsingum með viðskiptavinum. Stjórn Nvidia segist ekki hafa ástæðu til að ætla að þjóðaröryggi eða leyndarmál félagsins hafi verið í hættu.
Samkvæmt Forbes hefur utanríkisráðuneyti Kína vísað ásökununum á bug sem tilhæfulausum og kínversk stjórnvöld kalla þær rógsherferð.
Í kjölfar játningar Huangs hafa erlendir fréttamiðlar greint frá öðru mögulegu framhjáhaldi við starfsmann fyrirtækisins, Kimberly Powell. Hún er 48 ára varaforseti heilbrigðissviðs Nvidia og heyrði beint undir hann. NYT hafði það eftir fimm núverandi og fyrrverandi starfsmönnum.
Óljóst hvort kaupmáli hafi verið gerður
Þrátt fyrir afsögnina á Huang enn 3,5% hluta í Nvidia og var auður hans metinn á 143,8 milljarða dala þegar þessi fréttaskýring er skrifuð, sem nemur um 17.700 milljörðum króna. Til samanburðar var verg landsframleiðsla Íslands árið 2025 um 4.956 milljarðar króna.
Hlutabréf Nvidia hafa lækkað hratt í kjölfar afsagnarinnar og auður Huangs því sömuleiðis.
Samkvæmt umfjöllun Forbes er óljóst hvort Huang hafi gert kaupmála við eiginkonu sína Lori Huang. Í Kaliforníu, þar sem hjónin búa, gildir regla um sameign hjóna: eignir sem verða til í hjúskap skiptast að jafnaði jafnt við skilnað, nema um annað hafi verið samið.
Hér lengst til hægri má sjá Jensen Huang. Við hlið hans situr eiginkona hans Lori og við hlið hennar fyrrverandi forstjóri Apple, Tim Cook. AFP
Þau hjónin gengu í það heilaga árið 1985, tæpum áratug áður en Nvidia var stofnað. Samkvæmt umfjöllun Wall Street Journal sá Lori um öll fjármál heimilisins og eru þau bæði skráð sem fjárgæsluaðilar þeirra sjóða sem geyma hlutabréfin í Nvidia.
Lori Huang hefur ekki tjáð sig opinberlega frá því að greint var frá málinu og óvíst er hvort hjónabandið haldi.
Komi til skilnaðar og verði eignum skipt til helminga fengi hvort þeirra um 72 milljarða dala miðað við mat Forbes í morgun. Hlutnum í Nvidia yrði þá væntanlega skipt þannig að hvort um sig ætti um 1,75% í félaginu.
Forbes bendir þó á að endanleg skipting ráðist af samningum sem hjónin kunna að hafa gert og af því hvort Jensen geti sýnt fram á að einhverjar eignir séu séreign hans.
Valinn manneskja ársins af FT í fyrra
Huang stofnaði Nvidia, sem sérhæfir sig í skjákortum, árið 1993 ásamt Chris Malachowsky og Curtis Priem. Hann var forstjóri frá fyrsta degi og skráði félagið á markað árið 1999.
Undir stjórn Huangs urðu skjákort Nvidia ráðandi, fyrst í tölvuleikjum og nú í gervigreind, sem ýtti markaðsvirði fyrirtækisins yfir 5.000 milljarða dala markaðsvirði á síðasta ári.
Í fyrra útnefndi tímaritið Time hann einn af „arkitektum gervigreindarinnar“ og FT valdi hann manneskju ársins.
Huang fæddist í Taívan og flutti til Taílands sem barn. Hann var tíu ára þegar hann kom til Bandaríkjanna árið 1973 ásamt eldri bróður sínum.
Fimmtán ára gamall hóf Huang að starfa við uppvask á veitingastaðnum Denny's í Origon.
Hann lærði rafmagnsverkfræði í Oregon State og kynntist þar eiginkonu sinni Lori. Síðar starfaði hann hjá AMD og LSI Logic og lauk meistaraprófi frá Stanford. Börn þeirra tvö starfa bæði hjá Nvidia.
内容来自 Mbl.is - Helstu fréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗
