Nauðganir eru ódýrasta vopnið

„Fögur orð stöðva hvorki skriðdreka né flugskeyti,“ segir Sofi Oksanen. Ljósmynd/Toni Härkönen

„Nauðganir eru ódýrasta stríðsvopnið,“ segir finnsk-eistneski verðlaunarithöfundurinn Sofi Oksanen, sem er gestur á bókmenntahátíðinni Iceland Noir. 

Oksanen fyrir svörum hjá rithöfundinum Auði Övu Ólafsdóttur á Iceland Noir í Fríkirkjunni laugardaginn 14. nóvember kl. 14 og fást miðar á icelandnoir.com. Á morgun, föstudag, kl. 17 situr Oksanen fyrir svörum hjá Silju Báru Ómarsdóttur, rektor Háskóla Íslands, í bókabúð Forlagsins og er aðgangur ókeypis.

Bæta kvenhatri í haturskokteil netsins

„Engin leið er ódýrari til að ala á sundrungu í vestrænum samfélögum en að bæta kvenhatri í þann haturskokteil sem þegar er fyrir hendi á netinu. Það grefur líka undan lýðræðinu. Auðvitað væri kvenhatur á netinu fyrir hendi án afskipta Rússa. En þeir virka eins og lyftiduft eða ger sem fær nethatrið til að magnast,“ segir Oksanen. 

Skuggaher Rússa beitir kynferðisofbeldi í Afríkuríkjum

Hvað veldur þér mestum áhyggjum þegar þú hugsar um langtímaafleiðingar stríðs Rússa gegn Úkraínu?

„Langtímaafleiðingarnar felast í útbreiðslu gilda sem styðja ekki jafnrétti kynjanna. Í þessum töluðu orðum beitir skuggaher Rússa kynferðisofbeldi í Afríkuríkjum. Þetta snýst því ekki eingöngu um Úkraínu, heldur framtíð jafnréttis kynjanna um allan heim. Hversu langt munu aðrir einræðisherrar og valdhafar í einræðisríkjum ganga ef Rússar verða ekki dregnir til ábyrgðar fyrir stríðsglæpi sína, þar á meðal kynferðisofbeldið?“ segir Sofi Oksanen og tekur fram nauðsynlegt sé að binda enda á refsileysi Rússa. 

Myndlíkingar duga ekki lengur 

Þú ert þekktust fyrir skáldsögur þínar en valdir að skálda ekki í nýjustu bókinni þinni heldur byggja skrifin á heimildum. Hvers vegna þótti þér það form henta efniviðnum betur?

„Ég deili þeirri skoðun margra úkraínskra rithöfunda að eftir allsherjarinnrás Rússa í Úkraínu dugi myndlíkingar ekki lengur. Fögur orð stöðva hvorki skriðdreka né flugskeyti. Þess vegna þurfti ég að fjalla um efnið án þess að grípa til skáldskapar. Jafnframt vildi ég útskýra heimsvaldastefnu Rússa á þann hátt að fólk um allan heim gæti áttað sig á eðli hennar.

Margar skáldsagna minna gerast á liðnum tímum og þar verð ég að halda mig við þann orðaforða sem persónurnar hefðu sjálfar haft á valdi sínu. Þær hefðu ekki þekkt hugtök vestrænna eftirlendufræða. Þau hugtök eru mér hins vegar nauðsynleg til að afhjúpa þær ranghugmyndir sem Rússar halda á lofti og þær söguskýringar sem þeir byggja á, svo fólk um allan heim geti áttað sig á hvað að baki þeim býr.“

Ítarlegt viðtal við Sofi Oksanen má lesa í Morgunblaðinu í dag, fimmtudaginn 12. nóvember. 

内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅