Myndir: Veisla í Höllinni og enginn á varamannabekknum
Matvæli, eldhústæki og búnaður voru í sviðsljósinu þegar fagsýningin Stóreldhúsið 2026 fór fram í Laugardalshöll 5. og 6. nóvember. Starfsfólk veitingastaða, hótela, mötuneyta og annarra stóreldhúsa fjölmennti til að kynna sér nýjungar og hitta samstarfsfólk úr greininni.
Sýningin leiðir saman fólk sem sinnir ólíkum verkefnum en á það sameiginlegt að sjá fjölda manns fyrir mat á hverjum degi. Þar koma meðal annars saman matreiðslumenn, rekstraraðilar og starfsfólk eldhúsa í skólum og á heilbrigðisstofnunum, auk fulltrúa úr bakaríum og matvælaframleiðslu.
Á sýningarsvæðinu kynntu birgjar fjölbreytt úrval matvara, tækja og þjónustu fyrir daglegan rekstur eldhúsa. Gestir gátu rætt við sýnendur, borið saman lausnir og kynnt sér hvað er nýtt á markaðnum. Þá gafst tækifæri til að hitta viðskiptafélaga og skiptast á reynslu þvert á vinnustaði.
Stóreldhúsið var fyrst haldið árið 2005 og hefur fest sig í sessi sem samkomustaður fagfólks í matvæla- og veitingageiranum. Að sýningunni stendur Ritsýn sf., sem hefur yfir 25 ára reynslu af skipulagningu fag- og vörusýninga hér á landi. Framkvæmdastjóri fyrirtækisins er Ólafur M. Jóhannesson.
内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗