Harry Kane nær stórum áfanga

Harry Kane sínir stuðningsmönnum enska landsliðsins Gullboltann fyrir leik.

Harry Kane sínir stuðningsmönnum enska landsliðsins Gullboltann fyrir leik. AFP/Henry Nicholls

Fyrirliðinn Harry Kane er orðinn leikjahæsti leikmaður í sögu enska karlalandsliðsins í fótbolta.

Kane setti metið með því að vera í byrjunarliði Englands gegn Króatíu en leikurinn hófst rétt í þessu.

Kane, sem er 33 ára gamall, hefur nú leikið 126 landsleiki og er því einn á toppnum. Hann deildi metinu áður með markverðinum Peter Shilton, sem lék 125 landsleiki.

Kane er einnig langmarkahæsti leikmaður í sögu enska landsliðsins en hann hefur skorað 91 mark í þessum 126 leikjum. Næstur á eftir honum er Wayne Rooney með 53 mörk.

Lífið leikur við Kane um þessar mundir en hann vann Gullboltann í fyrsta sinn á dögunum. 

内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅