Steypistöðin innleiðir gervigreind

Steypustöðin er rótgróið fyrirtæki.

Steypustöðin er rótgróið fyrirtæki. mbl.is/Eyþór

Steypustöðin hefur samið við íslenska hugbúnaðarfyrirtækið ExOS Labs um innleiðingu gervigreindar í rekstur fyrirtækisins.

Þetta kemur fram í tilkynningu.

Samstarfið hefst með gerð á vegvísi sem hefur það að leiðarljósi að fara yfir helstu ferla fyrirtækisins og að meta hvar gervigreind getur skilað mestum ávinningi. Það getur til dæmis verið í framleiðslu, dreifingu eða sölu á vörum Steypustöðvarinnar.

ExOS verður einnig tekið í notkun hjá Steypustöðinni og tengt við kerfi félagsins svo að stjórnendur geti spurt um rekstrargögn á mannamáli og fengið ábendingar um hin ýmsu frávik.

Frá vinstri: Björn Ingi Victorsson, forstjóri Steypustöðvarinnar, Elísabet Ólöf Allwood, framkvæmdastjóri fjármála, Anna Garðarsdóttir, ráðgjafi á sviði gervigreindar, og Bjarni Ingimar Auðarson, forstjóri ExOS Labs. Ljósmynd/Aðsend

Rekstrarverkefni en ekki tækniverkefni

Anna Garðarsdóttir, ráðgjafi á sviði gervigreindar, vinnur með ExOS að gerð vegvísisins en horft verður til markmiða fyrirtækisins, forgangsröðunar tækifæra og breytinga á vinnulagi þess.

„Við lítum á gervigreind sem rekstrarverkefni, ekki tækniverkefni,“ segir Björn Ingi Victorsson, forstjóri Steypustöðvarinnar, um samstarfið.

„Við viljum byrja þar sem ávinningurinn er mestur, mæla árangurinn og byggja áfram á því sem reynist vel. Markmiðið er jafnframt að veita viðskiptavinum okkar betri og skilvirkari þjónustu. Með ExOS og Önnu fáum við bæði tæknina og aðferðina til að ná því,“ bætir hann við.

„Hjá Steypustöðinni eru teknar margar ákvarðanir á hverjum degi, til dæmis um hvaða bíll fer hvert, hvað er framleitt hvenær og hvernig tilboð eru verðlögð,“ segir Bjarni Ingimar Auðarson, forstjóri ExOS Labs.

„Markmið okkar er að ákvarðanirnar byggi á betri gögnum og séu teknar hraðar. Við byrjum á afmörkuðum verkefnum með skýrum mælikvörðum og metum framhaldið út frá árangrinum.“

内容来自 mbl.is - Viðskiptafréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅