Rooney á leið í frumskóginn – Óttast fjóra hluti
Wayne Rooney, goðsögn Manchester United og enska landsliðsins, hefur verið staðfestur sem þátttakandi í raunveruleikaþættinum I'm a Celebrity... Get Me Out of Here! í Ástralíu.
Rooney verður einn af tíu frægu einstaklingunum sem taka þátt í ár en hann viðurkennir að ýmislegt valdi honum áhyggjum.
Alan Shearer, fyrrverandi samherji Rooney í enska landsliðinu, ræddi við hann um þátttökuna. „Hann hlakkar til og er í frábæru formi,“ sagði Shearer.
„Ég spurði hann hvað hann óttaðist og hann sagði að hann væri með innilokunarkennd, þyldi ekki rottur, snáka eða mikla hæð.“
Shearer gat ekki stillt sig um að gera grín að félaga sínum. „Ég sagði við hann: Fyrir utan þetta ættirðu að vera í góðum málum!“
Shearer ætlar sjálfur að kjósa Rooney í sem flestar þrautir.
Eiginkona Rooney, Coleen, tók þátt í þáttunum árið 2024. Rooney vonast til að áhorfendur kynnist nú betur hans persónulegu hliðum.
„Ég vona að fólk sjái hver ég er í raun og veru.“
内容来自 DV.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗