Skoraði sjö í stórsigri Aftureldingar
Árni Bragi Eyjólfsson fór mikinn fyrir Aftureldingu þegar liðið tók á móti ÍBV í 10. umferð úrvalsdeildar karla í handbolta að Varmá í kvöld.
Leiknum lauk með sjö marka sigri Aftureldingar, 34:27, en Árni Bragi skoraði sjö mörk í leiknum og var markahæstur hjá Mosfellingum.
Afturelding fer með sigrinum upp í þriðja sæti deildarinnar í 13 stig, jafn mörg stig og FH sem er í fjórða sætinu. ÍBV hafði unnið tvo leiki í röð fyrir leik kvöldsins en liðið er með 10 stig í sjötta sætinu.
Sigur Aftureldingar var aldrei í hættu en Mosfellingar leiddu með sex mörkum í hálfleik, 19:13.
Einar Baldvin Baldvinsson átti stórleik í marki Aftureldingar, varði 14 skot og var með 42 prósent markvörslu, en Dagur Arnarsson var markahæstur hjá ÍBV með átta mörk.
Mörk Aftureldingar: Árni Bragi Eyjólfsson 7, Ævar Smári Gunnarsson 6, Leó Halldórsson 5, Oscar Sven Leithoff Lykke 4, Hans Jörgen Ólafsson 4, Kristján Ottó Hjálmsson 3, Stefán Magni Hjartarson 2, Einar Baldvin Baldvinsson 1, Kristján Hrafn Kristjánsson 1, Þorvaldur Tryggvason 1, Daníel Bæring Grétarsson 1.
Varin skot: Einar Baldvin Baldvinsson 14, Sigurjón Bragi Atlason 2.
Mörk ÍBV: Dagur Arnarsson 8, Atli Steinn Arnarson 7, Kristófer Ísak Bárðarson 2, Sveinn José Rivera 2, Jason Stefánsson 2, Andri Magnússon 2, Haukur Leó Magnússon 1, Einar Bent Bjarnason 1, Gary Emanuel Phillips 1.
Varin skot: Petar Jokanovic 9, Sigurmundur Gísli Unnarsson 1.
内容来自 mbl.is - Íþróttafréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗