Orri Steinn: Gerði gríðarlega mikið fyrir mig
Landsliðsfyrirliðinn Orri Steinn Óskarsson kemur í frábæru formi inn í komandi verkefni íslenska karlalandsliðsins í fótbolta.
Ísland mætir Búlgaríu á útivelli annað kvöld í fjórða riðli C-deildar Þjóðadeildar Evrópu. Með sigri getur íslenska liðið stigið stórt skref í átt að sigri í riðlinum.
Orri Steinn sat fyrir svörum á blaðamannafundi í Búlgaríu í dag ásamt landsliðsþjálfaranum. Hann hefur verið á mikilli siglingu með Real Sociedad að undanförnu og skorað fimm mörk í síðustu sex leikjum.
Finnst ég þrífast í þannig umhverfi
Grunninn að góðu gengi sínu lagði Orri í síðasta landsliðsverkefni þar sem hann skoraði þrjú mörk og lagði upp tvö til viðbótar í fjórum leikjum.
„Landsliðsverkefnið gerði gríðarlega mikið fyrir mig. Ég hef alltaf fundið fyrir því að þegar ég mæti í landsliðið sé treyst á mig og mér falin mikil ábyrgð,“ sagði Orri á blaðamannafundinum.
Hann hélt áfram:
„Mér finnst ég þrífast vel í þannig umhverfi og vissi að það gæti hjálpað mér að komast aftur á rétta braut. Erfiðasti hlutinn var að taka það sjálfstraust með mér úr landsleikjahléinu og það tókst mjög vel, þrátt fyrir að ég hefði verið í banni.
Ég náði að skora mörk og spila margar mínútur, þannig að ég held að það sé mikilvægt að halda ró sinni. Það hjálpar líka að skipta um umhverfi, hitta strákana og fá tækifæri til að sjá heiminn með landsliðinu. Það gerir manni gott andlega og hjálpar manni að slaka á.“
内容来自 Mbl.is - Íþróttir - Fótbolti,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗