Líf í bókum í Bókakonfekti kvöldsins
Bókakonfekt Forlagsins heldur áfram í kvöld, fimmtudaginn 12. nóvember kl. 20 í bókabúð Forlagsins á Fiskislóð 39 og í streymi sem sjá má hér fyrir neðan.
Bókakonfektkvöldin eru löngu orðin fastur liður bókaunnenda í aðdraganda jóla. Á kvöldunum lesa rithöfundar úr bókum sínum og árita fyrir þá sem þess óska. Léttar veitingar eru í boði. Allir eru velkomnir. Kvöldin eru fjögur fimmtudagskvöld í röð. Það fyrsta var fyrir viku og er hægt að horfa á upptöku, sjá hér neðar í fréttinni.
Í kvöld koma fram:
Melkorka Ólafsdóttir: Hverfa
Halldór Guðmundsson: Líf í bókum
Steinunn Sigurðardóttir: Veisla þrjú
Björn Halldórsson: Ókunnugt fólk
Gerður Kristný: Míkadó
Margrét Tryggvadóttir: Krossgötur
Hjálmar Sveinsson: Húsið
Hér má horfa á fyrsta Bókakonfektið sem fór fram fimmtudagskvöldið 5. nóvember.
内容来自 DV.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗