„Hann er dauður fyrir mér“
Lamar Odom og Khloé Kardashian meðan allt lék í lyndi. Hún sér nú eftir að hafa tekið þátt í heimildarmynd um fyrrverandi eiginmann sinn. AFP
Raunveruleikastjarnan Khloé Kardashian sér eftir að hafa tekið þátt í heimildarmynd um fyrrverandi eiginmann sinn, körfuknattleiksmanninn Lamar Odom. Hún segir ummæli hans um hjónaband þeirra hafa sært sig og vill ekkert frekar af honum vita.
Þetta kemur fram í nýjasta þætti The Kardashians. Þar lýsir Kardashian óánægju sinni með Netflix-heimildarmyndina Untold: The Death & Life of Lamar Odom, sem fjallar meðal annars um hjónaband þeirra og bata Odoms eftir að hann tók nær banvænan of stóran skammt fíkniefna árið 2015.
Kardashian tók þátt í myndinni að beiðni Odoms og segist hafa gert það án greiðslu til að gera honum greiða.
„Svo segirðu að þú hafir í raun ekki verið ástfanginn af mér og hafir gifst mér til að verða þekktari,“ segir hún og bætir við að sér hafi þótt margt í myndinni ósmekklegt.
Vill að hann hætti að tala um hana
Kardashian annaðist Odom mánuðum saman eftir veikindi hans árið 2015. Þau höfðu þá slitið samvistum en hún dró skilnaðarumsókn sína til baka til að geta sinnt honum. Hún sótti aftur um skilnað árið 2016.
„Ég þarf ekki að þú þakkir mér. Hættu bara að tala um mig. Ekki gera lítið úr því sem ég gerði,“ segir hún.
Hún telur samband þeirra nú endanlega úr sögunni.
„Hann er dauður fyrir mér.“
Hafnar því að hafa gifst henni frægðarinnar vegna
Odom hefur hafnað því að hafa sagst giftast Kardashian til að auka frægð sína. Í hlaðvarpinu Nothing’s Off the Table sagðist hann telja að ummælin hefðu komið frá börnum sínum eða öðrum viðmælendum í heimildarmyndinni.
Hann kvaðst hafa elskað Kardashian en ekki þurft á meiri frægð að halda þegar þau gengu í hjónaband árið 2009.
内容来自 Mbl.is - Fólkið - Fólk,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗/frimg/5/35/535389.jpg)
