Tyrkir fallnir eftir hræðilegt gengi
Belgía vann mikilvægan sigur á Tyrklandi, 2:1, í fyrsta riðli í A-deild Þjóðadeildar Evrópu í fótbolta í Izmir í Tyrklandi í kvöld.
Belgar eru með níu stig í öðru sæti riðilsins eftir sigurinn en Frakkar eru á toppnum með tíu. Ítalir eru síðan í þriðja með sjö og Tyrkir neðstir með ekkert. Ítalía og Frakkland mætast síðan á Ítalíu í kvöld.
Með tapinu eru Tyrkir fallnir niður í B-deildina.
Arda Güler kom Tyrkjum yfir með stórkostlegu aukaspyrnumarki á 20. mínútu en Kevin De Bruyne jafnaði metin fyrir Belga sjö mínútum síðar.
Aðeins þremur mínútum eftir það skoraði Charles De Ketelaere sigurmark Belgíu.
Belgar mæta Ítölum í síðustu umferðinni og Tyrkir Frökkum.
内容来自 mbl.is - Íþróttafréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗
