Tyrkir fallnir eftir hræðilegt gengi

Arda Güler, helsta stjarna Tyrklands, svekktur í kvöld.

Arda Güler, helsta stjarna Tyrklands, svekktur í kvöld. AFP/Yasin Akgul

Belgía vann mikilvægan sigur á Tyrklandi, 2:1, í fyrsta riðli í A-deild Þjóðadeildar Evrópu í fótbolta í Izmir í Tyrklandi í kvöld.

Belgar eru með níu stig í öðru sæti riðilsins eftir sigurinn en Frakkar eru á toppnum með tíu. Ítalir eru síðan í þriðja með sjö og Tyrkir neðstir með ekkert. Ítalía og Frakkland mætast síðan á Ítalíu í kvöld.

Með tapinu eru Tyrkir fallnir niður í B-deildina.

Belgar fagna.

Belgar fagna. AFP/Yasin Akgul

Arda Güler kom Tyrkjum yfir með stórkostlegu aukaspyrnumarki á 20. mínútu en Kevin De Bruyne jafnaði metin fyrir Belga sjö mínútum síðar.

Aðeins þremur mínútum eftir það skoraði Charles De Ketelaere sigurmark Belgíu.

Belgar mæta Ítölum í síðustu umferðinni og Tyrkir Frökkum.

内容来自 Mbl.is - Íþróttir - Fótbolti,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅