Hver er dýrasta flíkin sem þú hefur keypt?
Hver er dýrasta flík sem þú hefur keypt þér? Blaðamaður mbl.is lagði leið sína í Mjóddina og spurði vegfarendur hvað þeir hefðu borgað mest fyrir eina flík.
Það getur verið misjafnt hvað fólk er tilbúið að greiða fyrir eina flík. En hvaða flíkur verða fyrir valinu þegar meira er lagt í kaupin en gengur og gerist?
Meðal þess sem viðmælendur nefndu voru peysur og jakkar en ein tegund flíkur var þó langalgengust í svörum þeirra. Þótt fataskáparnir séu ólíkir virðast margir leggja mest í svipaðar flíkur.
Hvaða flík fær fólk til að opna veskið upp á gátt? Svörin má sjá í myndskeiðinu sem fylgir fréttinni.
内容来自 Mbl.is - Tíska,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗