Ekki hægt að rekja allan úrgang frá Íslandi

Milljónir tonna af plasti er framleitt á hverju ári.

Milljónir tonna af plasti er framleitt á hverju ári. AFP

Allt flokkað umbúðaplast frá heimilum á Íslandi fer til frekari flokkunar í Svíþjóð og þaðan áfram til endurvinnsluaðila innan Evrópusambandsins. Gæði efnisins ráða því hvort það fer til endurvinnslu eftir flokkun eða til orkunýtingar.

Þetta kemur fram í tilkynningu Úrvinnslusjóðs vegna umfjöllunar New York Times um íslenskt plast á ströndum Tyrklands. Þar kom fram að blaðamenn NYT hefðu fundið plast frá Evrópu, meðal annars Ísey skyrpakkningu frá Íslandi, umbúðir utan af mozzarella-osti frá Frakklandi, blautþurrkum frá Hollandi, tortellini frá Spáni, áburði frá Þýskalandi og ísbox frá Bretlandi, á göngu sinni meðfram skurðum og ströndum í kringum Adana í suðurhluta Tyrklands.

Í tilkynningu Úrvinnslusjóðs segir að það umbúðaplast sem endi að hluta til í Tyrklandi sé lituð og glær plastfilma, sem fari þangað í gegnum miðlara í Hollandi. Hér sé einkum um að ræða plast sem sé notað í iðnaði og viðskiptum, svo sem flutningsumbúðir.

Plastúrgangur frá Evrópu til Tyrklands fór yfir 700.000 tonn

Í umfjöllun NYT segir enn fremur að ruslahrúgurnar séu hluti af þeim plastúrgangi sem Tyrkland flytji inn ár hvert.

Í fyrra hafi plastúrgangur sem Evrópulönd sendu þangað farið yfir 700.000 tonn, sem sé met samkvæmt viðskiptagögnum.

Hann hafi allur átt að fara til endurvinnsluiðnaðarins í Tyrklandi. Stór hluti hans hafi verið endurunninn, ýmist í plastpoka, áveiturör eða plastköggla sem framleiðendur nota til að búa til nýjar vörur, en mikið af honum hafi endað úti í náttúrunni ásamt miklu magni af tyrknesku rusli og hvort tveggja hafi stuðlað að einmitt þeirri mengun sem endurvinnslu er ætlað að koma í veg fyrir.

Flokkað í Svíþjóð

Í tilkynningu Úrvinnslusjóðs segir að sveitarfélög beri ábyrgð á söfnun heimilisúrgangs og semji við þjónustuaðila, m.a. um að safna flokkuðum plastumbúðum frá heimilum. Þjónustuaðilarnir selji plastumbúðirnar sænska fyrirtækinu Stena Recycling, sem taki við þeim á hafnarbakka á Íslandi.

Stena flokkar efnið í flokkunarstöð sinni í Lanna í Svíþjóð. Fyrirtækið hefur staðfest skriflega við Úrvinnslusjóð að allt efni sem þar er flokkað fari beint til endurvinnsluaðila innan ESB eða til orkuendurnýtingar á Norðurlöndum, án milliliða.

Leifar sem falla til hjá endurvinnsluaðilunum og ekki er hægt að endurvinna eru nýttar til orkuframleiðslu í pappírs- og sementsverksmiðjum eða orkuverum innan ESB.

Árangurinn má rekja til flokkunar heimila og fyrirtækja

Ekki ratar allur úrgangur í rétta úrvinnslufarvegi. Góð flokkun eykur líkur á því að unnt sé að endurvinna eða nýta á annan hátt hráefni í úrgangi.

Að sama skapi er flokkun forsenda þess að úrvinnslugjald nýtist til þess að greiða fyrir meðhöndlun, þ. á m. endurvinnslu plastumbúða.

Milli áranna 2024 og 2025 jókst endurvinnsla á plastumbúðum sem safnað var á Íslandi úr 27% í 39%. Þann árangur má fyrst og fremst rekja til réttrar flokkunar frá heimilum og fyrirtækjum landsins.

Á sama tíma hækkuðu markmiðin sem Íslandi ber að ná úr 22,5% í 50%. Því er ljóst að betur má ef duga skal.

Samið um aðgang að upplýsingum

Úrvinnslusjóður fær upplýsingar um afdrif heimilisplasts sem fer til úrvinnslu innan ESB frá samþykktum ráðstöfunaraðila sjóðsins.

Varðandi rekjanleika annars plastumbúðaúrgangs hefur Úrvinnslusjóður samið við framleiðendaábyrgðarkerfið Valipac í Hollandi um að fá aðgang að upplýsingum um niðurstöður úttekta á endurvinnsluaðilum utan Evrópusambandsins.

Samningurinn tryggir samræmi og gæði í framkvæmd úttekta og felur í sér mikið kostnaðarhagræði fyrir alla aðila. Samkvæmt samningnum er sjóðnum óheimilt að deila upplýsingum úr þessum gögnum.

Nýlega gaf Ríkisendurskoðun út skýrslu um eftirfylgni stjórnsýsluúttektar á starfsemi sjóðsins þar sem m.a. er fjallað um rekjanleika á afdrifum úrgangs. Það er mat Ríkisendurskoðunar að sjóðurinn hafi komið sér upp ferlum til að fylgjast með ráðstöfun úrgangs eftir því sem unnt er. Ljóst sé hins vegar að ekki er hægt að fylgjast nákvæmlega með hvað verður um allan úrgang sem fer frá landinu.

内容来自 Mbl.is - Innlendar fréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅