Vildu ekki láta bendla sig við áætlunina

Endanleg útfærsla endurkaupaáætlunar Fasteignafélagsins Þórkötlu var ekki lögð fyrir húsnæðishóp á vegum forsætisráðuneytisins, þar sem fulltrúar hagsmunasamtaka Grindvíkinga, Járngerðar, áttu sæti.

Þetta segir Erla Ólafsdóttir, stjórnarmaður í Járngerði, í samtali við mbl.is.

Erla segir samtökin fagna því að áætlunin sé loks komin fram og Grindvíkingar geti rætt hana sín á milli. Hins vegar hafi stjórn Járngerðar talið nauðsynlegt að árétta að þátttaka samtakanna í undirbúningsvinnunni fæli ekki í sér samþykki við endanlega útfærslu hennar.

Stjórn Járngerðar hafði því formlega óskað eftir að nafn samtakanna yrði ekki tengt áætlun Þórkötlu á nokkurn hátt, enda telur Erla að aðeins hafi verið hlustað á sjónarmið þeirra að takmörkuðu leyti.

Bæjarstjórn Grindavíkur lýsti einnig yfir vantrausti á vinnubrögð og framgöngu Þórkötlu í dag og skoraði á stjórnendur félagsins að endurskoða áætlunina í samráði við Grindvíkinga.

Vilja meiri tíma og fyrirsjáanleika

Erla segir að tekið hafi verið tillit til einhverra athugasemda íbúafulltrúa en að mati Járngerðar hafi breytingarnar ekki náð til þeirra atriða sem mestu máli skipta við heildarútfærslu áætlunarinnar.

Hún nefnir meðal annars lengd samninganna, fyrirhuguð lok hollvinasamninga í janúarlok, mánaðarlega greiðslubyrði og tímasetningu endurkaupanna.

Samtökin hefðu viljað að Grindvíkingar fengju meiri tíma og fyrirsjáanleika til að kynna sér skilmálana og að framkvæmd áætlunarinnar hæfist í fyrsta lagi næsta vor.

„Við lítum á þetta sem endurreisnarverkefni“

Erla leggur áherslu á að endurkaupin snúist ekki eingöngu um fasteignaviðskipti, heldur endurreisn samfélagsins í Grindavík.

„Við lítum á þetta sem endurreisnarverkefni,“ segir hún.

Að hennar mati sé mikilvægt að nægilega margar fjölskyldur treysti sér til að nýta áætlunina frá upphafi. Það geti síðan orðið öðrum hvatning til að snúa aftur. Því skipti miklu máli að áætlunin sé vel útfærð og fari vel af stað.

Hún bendir jafnframt á að jarðhræringunum sé ekki lokið og að það geti falið í sér verulega fjárhagslega áhættu fyrir fjölskyldur að kaupa aftur húsnæði í Grindavík.

Erla segir Grindvíkinga þakkláta fyrir þá aðstoð sem þeir hafi fengið í kjölfar hamfaranna. Þeir hafi hins vegar ekki óskað eftir að lenda í þessari stöðu og þurfi svigrúm til að laga sig að breyttum aðstæðum.

„Við erum ekkert að biðja um að fá neitt gefins,“ segir hún.

Vilja halda samtalinu áfram

Á fjölmennum íbúafundi í Grindavík í gær áréttaði Erla að Járngerður vildi ekki láta tengja nafn sitt við áætlun Þórkötlu.

Örn Viðar Skúlason, framkvæmdastjóri félagsins, bað stjórn Járngerðar afsökunar á fundinum.

Erla segir stjórnina taka afsökunarbeiðnina gilda og leggur áherslu á að samtökin vilji ekki standa í illdeilum við framkvæmdastjórann.

Stjórnarkonurnar séu tilbúnar til frekari viðræðna ef vilji sé til að endurskoða áætlunina.

Erla gagnrýnir jafnframt að enginn úr stjórn Þórkötlu hafi verið viðstaddur íbúafundinn. Hún segir að í svo stóru máli hefði verið eðlilegt að stjórnin mætti sjálf til að svara spurningum Grindvíkinga.

Erla vonast til að samtalið sem hófst á íbúafundinum haldi áfram og leiði til lausna sem geri sem flestum Grindvíkingum kleift að snúa heim og stuðli að farsælli endurreisn Grindavíkur.

内容来自 Mbl.is - Innlendar fréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅