Tjáði sig um stöðuna á Glódísi Perlu
Þorsteinn Halldórsson, landsliðsþjálfari Íslands, telur stöðuna góða hjá landsliðsfyrirliðanum Glódísi Perlu Viggósdóttur þrátt fyrir að hún hafi misst af síðustu þremur leikjum Bayern München.
Glódís var ekki með Bayern í leikjum gegn Bayer Leverkusen og Werder Bremen í þýska bikarnum og deildinni. Hún sat síðan allan tímann á varamannabekknum þegar Bayern vann 2:1-útisigur á París Saint-Germain á þriðjudaginn.
„Staðan lítur vel út. Hún æfði á sunnudag og mánudag og var leikfær á þriðjudag en ákveðið var að nota hana ekki. Eins og staðan er núna er ég bjartsýnn og þetta lítur vel út,“ sagði Þorsteinn á blaðamannafundinum.
Hann bætti við:
„Þetta voru smávægilegar bólgur sem komu upp í hnénu á henni og hún þurfti tíma til að ná þeim niður. Eins og staðan er núna lítur þetta vel út.“
Glódís er lykilmaður í íslenska landsliðinu og fyrirliði þess, rétt eins og hjá Bayern München.
内容来自 Mbl.is - Íþróttir - Fótbolti,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗