Ákærður fyrir að nauðga stúlku og beita lögreglumenn ofbeldi

Maður hefur verið ákærður fyrir nauðgun gegn ólögráða stúlku og tvö ofbeldisbrot gegn lögreglumönnum. 

Meint brot voru framin árið 2024. Hann er sakaður um að hafa nauðgað stúlkunni föstudagskvöldið 13. september, í ótilgreindri íbúð. Er hann sagður hafa beitt stúlkuna ofbeldi og ólögmætri nauðung, en hann tók um háls hennar, setti fingur inn í leggöng hennar og hafði við hana samræði án þess að hún gæti spornað við því sökum ölvunar. 

Nóttina eftir nauðgunina, líklega í sömu íbúð, er hann síðan sakaður  um að hafa gripið um höfuð lögreglumanns svo hann hlaut af eymslu og roða yfir vinstra eyra og eymsli yfir vinstri kjálkalið. Hann er jafnframt sakaður um að hafa hótað þremur öðrum viðstöddum lögreglumönnum lífláti. 

Hann er síðan sakaður um að hafa þann 11. nóvember ráðist á lögreglumann á göngustíg. Kýldi hann lögreglumanninn með krepptum hnefa vinstra megin í andlitið þannig að hann vankaðist og datt aftur fyrir sig á lögreglubifhjól sem féll við það í jörðina ásamt lögreglumanni sem á því sat. Hótaði hann þeim lögreglumanni tvisvar lífláti. 

Foreldrar brotaþola gera kröfu um miskabætur fyrir hönd dóttur sinnar að fjárhæð þrjár milljónir króna. 

Málið er rekið fyrir Héraðsdómi Reykjaness og var það þingfest í dag, 12. nóvember. Þinghald er lokað. 

内容来自 DV.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅