Gjaldtaka „ákveðinn ómöguleiki“: Miklir peningar

Borgarstjóri hafnar alfarið veggjöldum á stofnvegum í borginni.

Þorsteinn Hermannsson, framkvæmdastjóri Betri samgangna, telur afar erfitt að innleiða flýti- og umferðargjöld á stofnvegum á höfuðborgarsvæðinu ef eigendur fyrirtækisins eru alfarið á móti þeim.

Hann segir þó ekki ástæðu til að óttast tafir á framkvæmdum samgöngusáttmálans að svo stöddu, þrátt fyrir afdráttarlausa afstöðu Reykjavíkurborgar gegn gjaldtökunni. Nauðsynlegt sé hins vegar að skýra sem fyrst hvernig fjármögnun framkvæmdanna verði háttað frá árinu 2030. 

Hildur Björnsdóttir, borgarstjóri í Reykjavík, sagði í Morgunblaðinu í dag að borgin, sem er einn eigenda Betri samgangna, muni alfarið hafna veggjöldum á almenna umferð á stofnvegum og að ríkið þurfi að leggja fram aðrar raunhæfar fjármögnunarleiðir. 

143 milljarðar eiga að koma inn

Þorsteinn bendir á að gjaldtakan krefjist lagasetningar á Alþingi og að þá lagasetningu þurfi að vinna í góðu samráði við sveitarfélögin. Jafnframt þurfi leyfi sveitarfélaganna til að koma upp gjaldtökubúnaði.

„Ég held að það sé ekki vilji til að fara með svona mál í gegnum Alþingi ef sveitarfélögin sem þetta á að gerast í eru alfarið á móti því. Ég held að það sé ákveðinn ómöguleiki í því að innleiða gjaldtöku ef sveitarfélögin eru ekki hlynnt því,“ segir Þorsteinn. „Þetta verður alltaf að vera unnið í breiðri sátt,“ bætir hann við. 

Í uppfærðum samgöngusáttmála frá árinu 2024 er gert ráð fyrir tekjum af flýti- og umferðargjöldum, eða annarri fjármögnun, upp á 143 milljarða króna frá árinu 2030 til 2040 en kostnaður við framkvæmdir sáttmálans var þá áætlaður um 311 milljarðar. Tæp 90 prósent af kostnaðinum fellur á ríkið en rúm 10 prósent á sveitarfélögin. 

Ætlunin er að fjármagna hluta samgöngusáttmála höfuðborgarsvæðisins með sölu á Keldnalandi, sem er í eigu Betri samgangna, en ljóst er að þeir peningar skila sér ekki í bráð, þar sem unnið er að endurmati á skipulagi á svæðinu. Borgarstjóri sagði ljóst að fyrirliggjandi upplegg í sáttmálanum, sem gerði ráð fyrir að tekjur af sölu byggingarréttar í Keldnalandi kæmu inn á árinu 2028, gæti aldrei gengið eftir. Áætlað var að salan skilaði 50 milljörðum.

Þorsteinn R. Hermannsson, framkvæmdastjóri Betri samgangna, segir enn tíma til stefnu. Ljómsynd/Aðsend

„Önnur fjármögnun“ lykilorðin 

Þorsteinn leggur áherslu á að sáttmálinn geri ekki fortakslaust ráð fyrir veggjöldum heldur sé sérstaklega kveðið á um möguleika á öðrum fjármögnunarleiðum. 

„Það segir „eða önnur fjármögnun“. Það eru lykilorðin í þessu í okkar huga. Ef það verða ekki flýti- og umferðargjöld þá verða samgönguframkvæmdir fjármagnaðar með öðrum hætti, eins og þetta hefur verið samþykkt.“ 

Hann viðurkennir þó að um verulegar fjárhæðir sé að ræða. 

„Þetta eru miklir peningar, það er alveg ljóst. Það er flókið úrlausnarefni að fjármagna samgöngur. Það er alveg á tæru, og nú er búið að breyta úr bensíngjaldinu yfir í kílómetragjaldið og fleira. Það eru breytingar í farvatninu og við eigum eftir að sjá hvernig þetta þróast.“ 

Þorsteinn segir enn tíma til stefnu þar sem ný fjármögnun eigi ekki að hefjast fyrr en árið 2030. Ef ákveðið verði að innleiða flýti- og umferðargjöld þurfi lagasetning hins vegar að liggja fyrir tveimur árum áður, eða árið 2028. 

„Það er 2030 sem miðað hefur verið við og við förum ekki af stað í einhverja fjárfestingu sem við sjáum ekki að sé hægt að fjármagna að fullu. Þannig að það má ekki líða allt of langur tími þar til það skýrist hvaða fjármögnunarleiðir þetta verða,“ segir Þorsteinn. 

Betri samgöngur fylgist náið með umræðunni en ákvarðanir um fjármögnun séu í höndum ríkis og sveitarfélaga. 

Enn tími til stefnu

Reykjavíkurborg á í samtali við ríkið og nágrannasveitarfélögin um samgöngusáttmálann og endurmat á honum. Hildur sagði í Morgunblaðinu í dag að borgin ætti fund með ráðherrum og bæjarstjórum síðar í þessum mánuði og að borgin hefði lýst yfir áhyggjum af forgangsröðun verkefna. Þá hefði borgin einnig áhyggjur af því hvernig ríkið ætlar að fjármagna sinn hluta sáttmálans. 

Aðspurður hvort afstaða Reykjavíkurborgar geti sett framkvæmdir samgöngusáttmálans í uppnám segist Þorsteinn ekki hafa áhyggjur af því að svo stöddu. 

„Ég hef ekki áhyggjur af því í bili. Það er ennþá tími til stefnu til að taka þessa ákvörðun og ræða þetta áfram,“ segir hann en tekur fram að mikilvægt sé að eyða óvissunni. 

Þorsteinn nefnir að meðal annarra möguleika varðandi fjármögnun hafi verið rætt um sérstaka gjaldtöku vegna verkefna í einkaframkvæmd, svo sem Miklubrautarganga og Sundabrautar, þar sem fólk eigi jafnframt kost á annarri gjaldfrjálsri leið, líkt og Hildur sagði sjálf í Morgunblaðinu að kæmi til greina af hálfu borgarinnar.  

„Þannig það eru vissulega aðrir kostir sem hægt er að skoða, að okkar mati,“ segir Þorsteinn, en hvort sú gjaldtaka geti staðið undir 45 prósentum af kostnaði við framkvæmdir samgöngusáttmálans, sé erfitt að segja til um.

内容来自 Mbl.is - Innlendar fréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅