Sýkna ríkisins í launadeilu við sendiherra staðfest
Landsréttur hefur sýknað íslenska ríkið af kröfum fyrrverandi sendiherra sem stefndi ríkinu til greiðslu meintra vangreiddra launa.
Var málinu skotið til Landsréttar í nóvember 2025 en áfrýjað var dómi Héraðsdóms Reykjavíkur sem féll í október þess árs.
Hann fór aðallega fram á að ríkið myndi greiða honum 11,5 milljónir króna.
Sendiherra í nokkrum löndum
Fram kemur að maðurinn hafi starfað í utanríkisþjónustunni nær allan sinn starfsferil. Þar á meðal var hann sendiherra í nokkrum löndum.
Reisti hann kröfur sínar annars vegar á þeim grunni að hann ætti rétt á launaeiningum vegna fastrar yfirvinnu er hann væri að störfum í þágu utanríkisþjónustunnar erlendis með sama hætti og hann hefði fengið slíkar einingar við störf í utanríkisráðuneytinu.
Hins vegar reisti hann kröfur sínar á því að ólögmætt hafi verið að miða launakjör hans við færri launaeiningar er hann kom heim til starfa í utanríkisráðuneytinu á þeim grundvelli að hann hefði ekki lengur mannaforráð.
Maðurinn taldi að ákvörðun Kjararáðs, þar sem mælt var fyrir um framangreint fyrirkomulag, hefði verið ólögmæt og ómálefnaleg. Vísaði hann meðal annars til laga um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins nr. 70/1996 og laga um utanríkisþjónustu Íslands nr. 39/1971.
Ekki sýnt fram á unna yfirvinnu
Ríkið hélt því meðal annars fram að manninum hefði átt að vera ljóst, ekki síst í ljósi mikillar reynslu hans og þekkingar á störfum utanríkisráðuneytisins, hvernig greiðslufyrirkomulagi launa til flutningsskyldra og útsendra starfsmanna væri háttað.
Þá hefði maðurinn á annað borð ekki sýnt fram á að hafa unnið yfirvinnu í störfum sínum. Ríkið gæti þannig með engu móti fallist á að um væri að ræða ólaunaða yfirvinnu sem væri brot á kjarasamningi.
Niðurstaðan staðfest
Að mati héraðsdóms kom ekkert fram sem benti til annars en að ákvörðunin hefði verið í samræmi við lög um utanríkisþjónustuna, verið málefnaleg og tekið eðlilegt mið af ólíkum störfum sendiherra.
Landsréttur tók undir þá niðurstöðu og benti jafnframt á að ekkert lægi fyrir um að við ákvörðun kjararáðs um laun áfrýjenda hefði ekki verið tekið mið af umfangi og álagi starfsins.
Þá hafi ekkert legið fyrir um að hann hefði óskað eftir sérstökum yfirvinnugreiðslum samkvæmt reglum utanríkisþjónustunnar.
Var niðurstaða héraðsdóms því staðfest.
内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗