Klárum þetta úti og tryggjum okkur sæti á EM

Það voru skrautlegar aðstæður í Laugardal.

„Bara svekkjandi, mjög svekkjandi að ná ekki að fara með betri úrslit til Grikklands,“ sagði Ágúst Orri Þorsteinsson, leikmaður U21 árs landsliðs karla í fótbolta, í samtali við mbl.is eftir jafnteflið við Grikkland, 1:1, á Þróttarvelli í dag.

Ísland komst yfir undir lok leiksins en Grikkir jöfnuðu í uppbótartíma. Ágúst Orri er þó bjartsýnn fyrir seinni leikinn í Grikklandi á mánudaginn kemur.

„Ég hef engar áhyggjur af leiknum úti. Ég held að við séum bara betra lið og vinnum úti,“ sagði Ágúst Orri.

Hann taldi íslenska liðið líklegra til að bæta við marki eftir að það komst yfir.

„Það var mjög, mjög sætt að komast yfir á 87. mínútu. Þá hélt ég bara að við værum að fara að setja annað, ef eitthvað er. Þeir voru alls ekki líklegir.

Það var því mjög svekkjandi að fá svo eitthvað skítamark á okkur undir lokin. Ég veit ekki einu sinni hvort þetta var aukaspyrna þarna á hliðinni. Ég veit ekki hvað dómarinn sá þar,“ sagði hann.

Leikurinn fór fram í snjókomu og jókst snjórinn á vellinum eftir því sem leið á leikinn. Ágúst Orri hafði gaman af aðstæðunum þótt þær hentuðu ekki endilega hans leikstíl.

„Það var alveg áhugavert. Maður hefur alveg gert þetta einhvern tímann á undirbúningstímabilinu, en undir lok leiksins var þetta orðið helvíti mikill snjór. Mér fannst þetta samt bara skemmtilegt.

Þetta eru ekki alveg aðstæður sem góðir, fljótir og tæknilegir kantmenn elska en þetta er skemmtilegt og maður mun ekki gleyma því þegar maður verður eldri að hafa spilað svona leik. Þetta er mjög skemmtilegt.“

Ágúst Orri var ekki hrifinn af viðbrögðum Grikkja við baráttunni á vellinum.

„Þeir voru bara að væla frá fyrstu mínútu og vilja ekki láta sparka í sig. Við vitum það fyrir næsta leik að þeir eru helvíti sárir.“

Hann hefur trú á að íslenska liðið klári verkefnið á útivelli og tryggi sér sæti á lokamóti EM.

„Ég er mjög bjartsýnn og brattur og hef engar áhyggjur af þessu. Ég held að við klárum þetta úti og tryggjum okkur sæti á EM. Það er bara þannig,“ sagði Ágúst Orri.

内容来自 Mbl.is - Íþróttir - Fótbolti,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅