Pep Guardiola gæti verið að fá áhugavert tilboð um endurkomu
Pep Guardiola, fyrrverandi knattspyrnustjóri Manchester City, er sagður efstur á óskalista bandaríska knattspyrnusambandsins fari Mauricio Pochettino til Manchester United.
Þetta kemur fram í frétt The Athletic.
Pochettino er talinn líklegastur til að taka við United af Michael Carrick og gæti yfirgefið bandaríska landsliðið eftir komandi landsleiki gegn Haítí.
Bandaríkjamenn þyrftu þá að finna nýjan landsliðsþjálfara og Guardiola er sagður vera draumakosturinn.
Spánverjinn vann sex Englandsmeistaratitla og Meistaradeildina með Manchester City en hefur einnig náð frábærum árangri með Barcelona og Bayern München.
Guardiola hefur áður lýst áhuga á að þjálfa landslið.
Hann var meðal annars nálægt því að taka við ítalska landsliðinu síðasta sumar.
Paolo Maldini greindi frá því að Guardiola hefði verið svo áhugasamur að hann væri farinn að skrifa niður mögulegar byrjunarliðsuppstillingar.
Bandaríska sambandið hafði einnig samband við Guardiola árið 2024, áður en Pochettino var ráðinn.
Enn hefur ekkert verið staðfest um möguleg þjálfaraskipti.
内容来自 DV.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗