Danskur hagfræðingur gagnrýnir Seðlabankann – Verðlag á Íslandi hafi hækkað 29.400 falt en bara 38 falt í Danmörku

Ritstjórn DV

Ritstjórn DV

Fimmtudaginn 12. nóvember 2026 17:20

Seðlabanki Íslands. Mynd/Anton Brink

Danski hagfræðingurinn Lars Christiensen segir að síðustu 100 árin hafi verðlag á Íslandi hækkað 29.400 felt í samanburði við 38 falt í Danmörku. Þetta kemur fram í færslu hans á Facebook sem RÚV vekur athygli á en þar segir hagfræðingurinn að íslenska krónan sé fórnarlamb óstjórnar Seðlabanka Íslands og pólitískra afskipta. 

Lars rekur að aðstæður hafi orðið sérstaklega slæmar á áttunda áratug síðustu aldar þar sem pólitíkin stýrði vöxtum og halli fjárlaga var fjármagnaður með yfirdrætti frá Seðlabankanum. 

„Þegar laun hækkuðu var krónan gengisfelld svo útflytjendur gætu staðið undir kostnaði. Raunvextir voru neikvæðir til lengri tíma, að meðaltali -10% ár ári.“

Síðan tók við óðaverðbólga sem náði hámarki árið 1983 í 84 prósentum. Lars telur þetta beina afleiðingu af ákvörðunum Seðlabankans. Áratugum saman hafi Ísland farið þá leið að mæta launakröfum, hallafjárlögum og þörfum sjávarútvegs með því að auka peningaframboð og viðhalda þannig hárri verðbólgu. Ræður Lars öðrum seðlabönkum heims frá því að villast sömu leið, en miðað við aðstæður í dag séu auknar líkur á að pólitíkin freistist til að hafa afskipti af vaxtastigi. Um leið og seðlabankar láta  undan slíkum pólitískum þrýstingi og laga sig að aðstæðum sé ekki lengur til staðar akkeri fyrir verðbólguna. 

„Þegar Landsbankinn tók við árið 1927 kostaði ein dönsk króna 1,22 íslenskar krónur. Í dag kostar hún því sem samsvarar um 1.800 gömlum krónum en Ísland felldi tvö núll af krónunni árið 1981.“

Ekki eru allir sáttir með þessa greiningu danska hagfræðingsins og benda í athugasemdum á að Ísland hafi á þessum 100 árum nánast skriðið úr torfkofum yfir í nútímalegri fúnkís-hús. Þrátt fyrir þessa meintu óstjórn Seðlabankans mælist Ísland meðal efstu þjóða á listum yfir flesta þá þætti sem mæla velmegun. Sumir taka þó undir og benda á að það sé væntanlega séríslenskt fyrirbæri að laun hafi hækkað að meðaltali um 6-8 prósent á ári síðustu 35 árin, en við því segir Lars bara: „Ég gæti nú talað lengi um það.“

Fleiri fréttir

内容来自 DV.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅