Harry Kane pirraður á enskum landsliðsmönnum sem viðhafa þessa hegðun
Thomas Tuchel, landsliðsþjálfari Englands, segir Harry Kane ósáttan við leikmenn sem draga sig úr landsliðsverkefnum án þess að vera alvarlega meiddir.
Nokkrir leikmenn hafa hætt við þátttöku í landsliðshópum Tuchel undanfarna mánuði, þar á meðal Cole Palmer.
Tuchel segir Kane leggja mikla áherslu á að leikmenn sýni landsliðinu virðingu.
„Hann er alltaf mættur og líkar ekki þegar leikmenn ákveða að mæta ekki þótt þeir séu í raun á mörkunum,“ sagði Tuchel.
„Við ræddum þetta strax þegar ég tók við. Hann vildi tryggja að leikmenn væru stoltir af því að mæta, því þetta eru mestu forréttindin.“
Tuchel segir fyrirliðann hafa sett skýr viðmið.
„Hann myndi aldrei draga sig úr landsliðshópnum. Aldrei.“
Kane stefnir á að ná 100 mörkum fyrir England og vill jafnframt bæta landsleikjametið verulega.
„Ég vil ekki ljúka ferlinum og hugsa að ég hefði getað gert meira,“ sagði Kane.
内容来自 DV.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗