Segir stjórnvöld ætla að mismuna foreldrum – Hærri barnabætur til sambúðarfólks
Ríkisstjórnin hefur lagt fram tillögu á Alþingi um hækkun barnabóta og hækkun skerðingarmarka þeirra. Andrea Sigurðardóttir blaðamaður gerir alvarlegar athugasemdir við áformin vegna þess að gert er ráð fyrir að skerðingarmörk sambúðarfólks verði tvöfalt hærri en einstæðra foreldra. Hún bendir á að framfærslukostnaður barns vegna barns sé ekki hærri þó tveir fullorðnir séu í heimili.
Þetta kemur fram í aðsendri grein Andreu í Morgunblaðinu:
„Samkvæmt fyrirhuguðum breytingum á barnabótakerfinu árið 2027 hefst skerðing hjá einstæðu foreldri þegar árstekjur fara yfir 6,1 milljón króna, en hjá hjónum og sambúðarfólki ekki fyrr en samanlagðar tekjur fara yfir 12,2 milljónir.
Af þessu mætti ætla að framfærslukostnaður barns verði meiri þegar það býr með tveimur foreldrum í stað eins. Það er þó svo að þarfir barnsins fyrir húsnæði, fæði, fatnað, umönnun og aðrar nauðsynjar ráðast almennt ekki af hjúskaparstöðu foreldra þess. Þótt framfærslukostnaður tveggja fullorðinna sé vissulega meiri en eins, hefur sá viðbótarkostnaður ekkert með þarfir barnsins að gera.“
Tilfærir hún dæmi um hjón með eina milljón krónur í samanlagðar mánaðartekjur og einstætt foreldri með sömu tekjur. Segir hún að hjónin fengju 178 þúsund krónum hærri bætur árlega en einstæða foreldrið.
Ætti ekki að vera markmiðið að fjölga bótaþegum
Áætlað er að barnabótaþegum geti fjölgað um fjögur þúsund við þessar breytingar, verði þær að veruleika, en Andrea segir að fjölgun bótaþega ætti ekki að vera markmið í sjálfu sér:
„Fjölgun bótaþega ætti ekki að vera sjálfstætt markmið ef tilgangur tekjutengingar barnabóta er að beina stuðningi til þeirra sem mest þurfa á honum að halda. Fremur en að víkka bótaréttinn til tekjuhærri heimila, sem fá eftir atvikum aðeins óverulegar greiðslur, væri eðlilegra að nýta fjárhagslegt svigrúm til að auka stuðning við börn á tekjulægri heimilum.“
Hún bendir á að útgjöld vegna framfærslu barns minnnki ekki við að eitt foreldri standi undir þeim í stað tveggja og segir í lok greinar sinnar:
„Erfitt er að átta sig á því hvaða málefnalegu rök eru fyrir því að barn eigi að njóta meiri stuðnings hins opinbera vegna þess eins að það býr með tveimur foreldrum í stað eins. Aftur á móti er auðvelt að færa rök fyrir því að með þessu fyrirkomulagi mismuni hið opinbera börnum eftir hjúskaparstöðu foreldra þeirra.“
内容来自 DV.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗