Yfirvöld óttast að Russell Brand stofni kristinn sértrúarsöfnuð í fangelsinu
Kristinn H. Guðnason
Fimmtudaginn 12. nóvember 2026 17:30
Russell Brand er áhrifamikill og hrífandi og gæti afvegaleitt samfanga sína.
Fangelsismálayfirvöld í Bretlandi fylgjast grannt með nýhafinni afplánun hins dæmda kynferðisbrotamanns Russell Brand. Óttast þeir að hann stofni kristinn sértrúarsöfnuð á bak við lás og slá.
Breska blaðið The Daily Star greinir frá þessu.
Leikarinn og áhrifavaldurinn Russell Brand var eins flestir vita dæmdur tíu og hálfs árs fangelsi fyrir nauðgun og þrjú önnur tilfelli kynferðisbrota á löngu tímabili. Hóf hann samstundis afplánun dómsins og er vel fylgst með afdrifum hans á bak við lás og slá.
Skírðist í Thames
Brand var áður búddisti en hefur snúist til kristinnar trúar á undanförnum árum samfara því að lífsskoðanir hans hafa orðið æ hægrisinnaðri. Brand var skírður af sjónvarpsmanninum Bear Grylls í Thames ánni í apríl árið 2024 og kristin trú hefu orðið meira áberandi í orðræðu hans.
Þeir sem þekkja til segja að Brand muni líklega herðast í trúnni og predikunum sínum á bak við lás og slá og gæti hæglega fengið aðra fanga til fylgilags við sig. En Brand er mjög áhrifamikill og hefur lag á því að hrífa fólk. Áður en hann var dæmdur í fangelsi mátti til að mynda sjá kristna stuðningsmenn hans mótmæla dóminum við dómshúsið.
Sjá einnig:
Russell Brand æfur eftir fangelsisdóminn – Lögmaðurinn fær að kenna á því
„Það er ekki mikil samúð í garð fórnarlamba hans, hann heldur því enn fram að hann sé saklaus,“ sagði heimildarmaður Daily Star í fangelsinu. „Hann heldur því enn fram, við alla sem vilja hlusta, að kerfið sé á móti honum, að um sé að ræða skrumskælingu á réttarkerfinu, og hann telur að æðri öfl hafi komið honum í gildru. Það er ljóst að hann sýnir enn enga iðrun vegna gjörða sinna gagnvart fórnarlömmunum og telur að allt saman sé samsæri gegn honum.“
Áhrif á aðra fanga
Enn sem komið er er Russell Brand haldið einum í klefa og fær ekki að vera innan um aðra fanga. Þetta er þó ekki stefnan til langframa, því hann á yfir höfði sér langan dóm og verður ekki haldið í einangrun allan þann tíma líkt og dauðadæmdum fanga.
„Hann verður vistaður með öðrum, og þá vakna áhyggjur af því að hann fari að hafa áhrif á aðra fanga,“ segir heimildarmaðurinn. „Hann er þekktur einstaklingur sem situr í fangelsi, það hefur í för með sér ýmsar áskoranir, meðal annars þá staðreynd að margir vilja komast að honum. Við höfum öll heyrt hann prédika utan fangelsisveggjanna. Líklegt er að það haldi áfram.“
Segir heimildarmaðurinn að Brand hafi þegar fengið heimsókn frá presti í fangelsið. Fólk noti ýmsar aðferðir til að takast á við fangelsisvist. „Og oft snýr fólk sér að trúarbrögðum. En stutt er í að öfgafullar skoðanir fylgi,“ segir hann.
Fleiri fréttir
内容来自 DV.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗