Bakkaði á konu og þarf að greiða 3,5 milljónir

Maðurinn var dæmdur í þrjátíu daga skilorðsbundið fangelsi og til að greiða konunni 3,5 milljónir króna í miskabætur, auk vaxta. mbl.is/Golli

Landsréttur hefur staðfest dóm yfir karlmanni sem bakkaði á konu á bifreiðastæði við Lóuhóla í Reykjavík með þeim afleiðingum að hún hlaut lífshættulega áverka.

Maðurinn var dæmdur í þrjátíu daga skilorðsbundið fangelsi og til að greiða konunni 3,5 milljónir króna í miskabætur, auk vaxta.

Dómur Héraðsdóms Reykjavíkur frá því í desember í fyrra stendur því óbreyttur um sakfellingu, refsingu og miskabætur. Landsréttur bætti þó við rökstuðning héraðsdóms og taldi upptöku úr eftirlitsmyndavél sýna mikið skeytingarleysi af hálfu mannsins við aksturinn.

Slysið varð á bifreiðastæði við Lóuhóla 2–6 hinn 15. mars 2024. Maðurinn ók inn á bifreiðastæðið í leit að stæði en ákvað síðan að bakka. Við það ók hann á konuna, sem var gangandi á leið í verslun. Hún festist undir bifreiðinni og vegfarendur lyftu bifreiðinni til að ná henni undan.

Stöðvaði fyrst þegar bankað var á rúðuna

Maðurinn neitaði sök og kvaðst hafa sýnt aðgæslu við aksturinn. Hann byggði meðal annars á því að konan hefði verið í blindum bletti og hann því ekki séð hana þrátt fyrir að hafa litið í spegla og á skjá bakkmyndavélar.

Héraðsdómur féllst ekki á þær skýringar. Konan hefði verið beint fyrir aftan bifreiðina og ökumaðurinn átt að verða hennar var hefði hann gætt nægilega að sér. Þá hefði hann ekki stöðvað þegar hann fann dynk heldur bakkað áfram. Hann hefði fyrst stöðvað þegar vegfarendur bönkuðu á rúðu bifreiðarinnar til að gera honum viðvart.

Landsréttur staðfesti þetta mat. Rétturinn benti jafnframt á að upptakan sýndi afar ógætilegan akstur, bæði inn á bifreiðastæðið og sérstaklega þegar maðurinn bakkaði. Bifreiðin hefði vart numið staðar áður en henni var ekið hratt aftur á bak.

Alvarlegir áverkar og langvarandi sjúkrahúsdvöl

Konan hlaut meðal annars mörg rifbrot, brot á höfuðkúpu og andlitsbeinum og fjölmarga yfirborðsáverka. Samkvæmt héraðsdómi voru áverkar hennar lífshættulegir. Sjúkrahúsdvöl hennar og endurhæfing stóðu samtals í um fimm mánuði og bar hún fyrir héraðsdómi að hún glímdi enn við afleiðingar slyssins.

Héraðsdómur taldi manninn hafa sýnt stórfellt gáleysi og að skilyrði til greiðslu miskabóta væru því uppfyllt. Landsréttur staðfesti þá niðurstöðu með viðbótarrökstuðningi sínum um aksturinn.

Maðurinn hafði krafist sýknu fyrir Landsrétti, en til vara vægustu refsingar. Þá krafðist hann sýknu af miskabótakröfunni eða frávísunar hennar, en til vara að bæturnar yrðu felldar niður eða lækkaðar. Konan krafðist fimm milljóna króna í miskabætur, en til vara staðfestingar héraðsdóms.

Fangelsisrefsingin er að öllu leyti skilorðsbundin til tveggja ára. Maðurinn þarf jafnframt að greiða samtals 4.105.019 krónur í sakarkostnað í héraði og áfrýjunarkostnað.

内容来自 Mbl.is - Innlendar fréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅